Þýska stórveldið Kiel beið lægri hlut fyrir portúgalska liðinu Porto í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.
Leikurinn var nokkuð jafn og spennandi heilt yfir en Kiel, sem var á heimavelli, leiddi með einu marki í leikhléi, 15-14. Í upphafi síðari hálfleiks virtust Kiel svo ætla að sigla sigrinum heim þar sem þeir náðu meðal annars fimm marka forystu.
Gestirnir frá Portúgal neituðu hins vegar að gefast upp og náðu að innbyrða óvæntan sigur með frábærum lokamínútum en sigurmarkið kom á síðustu sekúndu leiksins. Lokatölur 27-28 fyrir Porto.
Victor Alvarez var markahæstur Portúgalanna með sex mörk en Niclas Ekberg hjá Kiel var markahæsti leikmaður vallarins með sjö mörk.
Þetta var fyrsta tap Kiel í Meistaradeildinni á þessari leiktíð en Porto er með átta stig eftir sjö leiki.
Kiel tapaði fyrir Porto
Arnar Geir Halldórsson skrifar

Mest lesið



Grealish og Foden líður ekki vel
Enski boltinn



Njarðvík og ÍR fögnuðu bæði tveimur sigrum í kvöld
Íslenski boltinn



