Hann segir kaffiþyrsta Íslendinga hafa tekið Nespresso fagnandi og vörumerkið hafi vaxið hratt.

Endurvinnsla lykilatriði í starfsemi Nespresso
Kaffið frá Nespresso er í endurvinnanlegum álhylkjum og segir Ívar fyrirtækið leggja mikla áherslu á endurvinnslu. Nespresso taki þátt í verkefnum um framhaldslíf hylkjanna, þau séu bæði notuð í ný hylki og einnig í aðrar vörur. Í raun á hreint ál endalaust framhaldslíf.„Hylkin eru nánast full endurvinnanleg og til gamans má geta að það þarf einungis sem samsvarar 1,1 hylki til að búa til nýtt. En álhylkin þurfa ekki að enda aftur sem kaffihylki heldur geta þau endað sem Victorinox vasahnífur eða Vélosophy reiðhjól til að nefna örfá samstörf sem Nespresso hefur farið í með notuð álhylki á heimsvísu, svo dæmi séu nefnd,“ útskýrir Ívar.

Nespresso leggur mikla áherslu á að hylkin frá þeim séu úr 100% hreinu áli svo hægt sé að endurvinna þau. Ál er hluti af lausninni.

Ilmandi tilboð alla helgina
„Í tilefni af svörtum föstudegi og afmælisins á laugardaginn verður hægt að gera góð kaup hjá okkur alla helgina, jafnvel klára jólagjafakaupin,“ segir Ívar.„Það verða ýmis tilboð í gangi hjá okkur, kaffivélar og fylgihlutir á 20% afslætti og vinsælu Nespresso PURE postulínsbollarnir, sem margir eru að safna, verða á 2 fyrir 1 um helgina. Mjólkurflóararnir okkar eru mjög vinsælir gæðanna vegna og þeir verða á tilboði um helgina,“ segir Ívar og lofar góðum móttökum í verslunum Nespresso.
„Ekki má gleyma hátíðarkaffinu okkar sem viðskiptavinir okkar bíða eftir ár hvert. Ég hvet fólk til að kíkja til okkar um helgina. Það verður tónlist, gjafapokar og frábær stemming í Kringlunni, og minni á að tilboðin gilda einnig í Smáralind og vefversluninni á nespresso.is.“
