Fótbolti

Stjóri Flamengo hræðist ekki Liverpool

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jorge fagnar í gær.
Jorge fagnar í gær. vísir/getty
Jorge Jesus, stjóri Flamengo, er klár í slaginn þurfi liðið að mæta Liverpool í HM félagsliða sem fer fram í Katar í næsta mánuði.

Flamengo vann í gær úrslitaleikinn í Copa Libertadores er liðið vann 2-1 enudrkomusigur á River Plate. Þar af leiðandi tryggði liðið sér sæti á HM félagsliða.

„Það var horft á leikinn í 186 löndum og allir þeir geta séð gæðin í leiknum. Sé leikurinn borinn saman við úrslitaleikinn í Meistaradeildinni í Madríd þá var þetta betri hvað varðar taktík, tækni og var litríkari,“ sagði Jorge grjótharður.







Flamengo og Liverpool mætast ekki í undanúrslitunum í Katar en vinni bæði liðin sína leiki mætast þau í úrslitaleiknum.

„Við verðum í Katar og spilum við Liverpool. Við munum spila tvo leiki áður en við höfum lið til þess að vinna bikarinn.“

Liverpool spilar sinn undanúrslitaleik 18. desember en Flamengo spilar deginum áður. Hverjir mótherjarnir verða er ekki klárt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×