Jarðskjálfti að stærð 3,5 varð við Fagradalsfjall á tólfta tímanum í dag. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að skjálftinn hafi fundist vel á höfuðborgarsvæðinu.
Hrina hefur verið í gangi við Fagradalsfjall frá 15. des og hafa yfir 1500 jarðskálftar hafa mælst í hrinunni. Margir hafa fundist vel á Reykjanesi. Jarðskjálftar eru algengir á þessu svæði.
Jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu
