Innlent

Jón hótar stjórnarslitum vegna ákvarðana umhverfisráðherra

Birgir Olgeirsson skrifar
Jón Gunnarsson, formaður Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.
Jón Gunnarsson, formaður Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Vísir/Vilhelm
Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks er harðorður í garð Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfisráðherra í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

Þar lýsir Jón afar mikilli óánægju vegna friðlýsinga sem Guðmundur Ingi hefur efnt til og segir Jón að aðferðafræði Guðmundar standist enga skoðun og að Guðmundur fari ekki eftir lögum í þeirri útfærslu sem hann boðar.

„Ég get ekki séð að við þingmenn Sjálfstæðisflokksins getum stutt stjórnarsamstarf sem fer fram með þessum hætti. Það er best að gera grein fyrir því strax,“ skrifar Jón Gunnarsson.

Katrín Jakbsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson.Vilhelm
Spyr Jón hvort einhverjum detti í hug að Alþingi hafi framselt að vald til eins manns, að hann geti að eigin geðþótta ákveðið friðlýsingarmörk?

„Það er annarra að gera það og Alþingis að afgreiða samhliða rammaáætlun hverju sinni. Skýrt dæmi um hvernig aðferðafræði ráðherrans mun virka í raun er t.d. að ef engin virkjun væri í dag til staðar í Þjórsá og Alþingi hefði ákveðið að setja virkjunarkostinn Urriðafoss íverndarflokk myndi ráðherrann friða allt vatnasvæði Þjórsár frá jökli til ósa þannig að engin virkjun yrði reist við Þjórsá. Þetta er galin leið og gengur ekki upp.“

Í greininni segir Jón forystuleysi hafa ríkt í þessum málaflokki og að það gangi illa að koma málum í eðlilegan farveg þegar kemur að uppbyggingu dreifikerfis raforku og frekari orkuframleiðslu.

Hann segir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og orkumálaráðherra, hafa sýnt frumkvæði í málaflokknum og sett af stað vinnu við fyrstu orkuáætlun landsins.

„Það er kynleg staða og óásættanleg sem orkumálaráðherra okkar er komin í þegar hún þarf að ræða útfærslur á skerðingu á afhendingu raforku á næstu árum. Í mínum huga er einfalda svarið við þeirri spurningu að á vakt Sjálfstæðisflokksins kemur ekki til skerðinga í raforkukerfi okkar. Við munum sjá til þess að heimili og fyrirtæki í þessu orkuríka landi hafi næga ódýra raforku og að sköpuð verði tækifæri til að byggja upp nýjungar í verðmæta- og atvinnusköpun um allt land.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×