Fótbolti

Choupo-Moting með eitt ótrúlegasta klúður allra tíma | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Maður kvöldsins.
Maður kvöldsins. vísir/getty
Eric Maxim Choupo-Moting bauð upp á eitt ótrúlegasta klúður allra tíma í leik Paris Saint-Germain og Strasbourg í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Leikurinn byrjaði vel fyrir kamerúnska framherjann sem kom PSG yfir á 12. mínútu. Strasbourg jafnaði á 26. mínútu og skömmu síðar átti Choupo-Moting að koma PSG aftur yfir. Þess í stað bjargaði hann á línu fyrir Strasbourg.

Christopher Nkunku lyfti boltanum yfir markvörð Strasbourg, Matz Sels, og Choupo-Moting þurfti aðeins að ýta boltanum yfir marklínuna. Það tókst ekki betur en svo að hann bjargaði því að boltinn færi inn og gaf varnarmönnum Strasbourg tækifæri á að bægja hættunni frá.

Þetta ótrúlega atvik má sjá hér yfir neðan.





Strasbourg komst yfir á 38. mínútu en Thilo Kehrer jafnaði fyrir PSG átta mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 2-2. PSG er með 20 stiga forskot á toppi deildarinnar.

Choupo-Moting kom á frjálsri sölu til PSG frá Stoke City fyrir tímabilið og hefur verið í aukahlutverki hjá franska stórliðinu í vetur. Stoke féll á síðasta tímabili en samt fékk Choupo-Moting samning hjá PSG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×