KR-ingar aðeins unnið einn deildarleik á Akranesi síðan 2007 Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. júní 2019 11:00 Jóhannes Karl skoraði stórglæsilegt mark í sigri ÍA á KR, 3-2, á Akranesi sumarið 2012.
ÍA og KR mætast á Norðurálsvellinum á Akranesi í 8. umferð Pepsi Max-deildar karla í dag. Sama hvernig fer er ljóst að annað liðið verður á toppi deildarinnar eftir leikinn. ÍA er með 16 stig í 2. sæti deildarinnar, jafn mörg og topplið Breiðabliks. KR er í 3. sætinu með 14 stig. KR hefur ekki átt góðu gengi að fagna á Akranesi á undanförnum árum. Frá 2007 hafa ÍA og KR sjö sinnum mæst í efstu deild á Akranesi. Skagamenn hafa unnið þrjá leiki, þrisvar sinnum hefur orðið jafntefli og KR-ingar unnið einn leik. Eini sigur KR kom sumarið 2016. Mark danska framherjans Mortens Beck Andersen skildi liðin þá að. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, skoraði stórglæsilegt mark með skoti beint úr aukaspyrnu í 3-2 sigri Skagamanna á KR-ingum 2012. Gary Martin skoraði sigurmark ÍA í leiknum en seinna um sumarið gekk hann í raðir KR. Í tveimur þessara leikja, 2008 og 2013, voru Skagamenn fallnir. Leikurinn 2008 endaði með markalausu jafntefli og 2013 vann ÍA 3-1 sigur í leik sem fór fram í Akraneshöllinni. Leikur ÍA og KR hefst klukkan 16:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Útsending hefst klukkan 15:40.Síðustu sjö deildarleikir ÍA og KR á Akranesi:2007 ÍA 3-1 KR2008 ÍA 0-0 KR2012 ÍA 3-2 KR2013 ÍA 3-1 KR2015 ÍA 0-0 KR2016 ÍA 0-1 KR2017 ÍA 1-1 KR
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kári fárveikur í HM-stofunni og endaði í hjartaþræðingu Handbolti „Hvernig datt ykkur í hug að gera þetta?“ Fótbolti Þrjár ógildar lyftur hjá Sigríði Andersen á Evrópumótinu Sport Hve há eru launin hjá besta handboltamanni heims? Handbolti Ekkert áfengi verði leyft á HM 2034 Fótbolti Víkingar spila í frosti: „Velkomnir í Hel“ Fótbolti Með sigri verði Liverpool með aðra hönd á enska meistaratitlinum Enski boltinn Víkingar hættir í Lengjubikarnum Íslenski boltinn „Hann er í furðu góðu standi miðað við að vera fertugur“ Fótbolti Leik lokið: Haukar - ÍBV 28-24 | Eyjamenn sjálfum sér verstir Handbolti Fleiri fréttir Herra Fjölnir tekur við Fjölni „Púsluspilið gekk ekki upp“ Víkingar hættir í Lengjubikarnum Ætla að spila í Grindavík: „Ábyrgð mín að koma liðinu heim“ Sif Atla ráðin framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands Andri Rúnar með þrennu fyrir Stjörnuna í kvöld Þorri sagður á heimleið: „Verð þakklátur alla ævina“ Úlfur óvænt rekinn frá Fjölni Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum Tvær þrennur í níu marka stórsigri Hrannar með þrennu gegn Þór Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Sjá meira