Lífið

Ný stikla úr Breaking Bad myndinni El Camino

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jesse Pinkman er að fara mæta aftur á skjáinn.
Jesse Pinkman er að fara mæta aftur á skjáinn.
Aðdáendur sjónvarpsþáttanna Breaking Bad um efnafræðikennarann Walter White og fyrrum nemanda hans Jesse Pinkman sem lenda í ýmsu eftir að þeir demba sér í eiturlyfjaframleiðslu, geta svo sannarlega beðið eftir 11. október næstkomandi með eftirvæntingu en þá kemur kvikmynd út á Netflix.

Kvikmyndin mun bera nafnið El Camino en í gær kom fram glæný stikla úr myndinni.

Breaking Bad hófu göngu sína árið 2008 á sjónvarpsstöðinni AMC, fimm þáttaraðir voru framleiddar og lauk þeim haustið 2013. Þættirnir hafa verið fádæma vinsælir en honum féllu í skaut alls 16 Emmy-verðlaun og tvö Golden Globe verðlaun.

Í aðalhlutverkum eru þeir Bryan Cranston, sem leikur Walter White, og Aaron Paul, sem leikur Jesse Pinkman. Fleiri persónur úr þáttunum hafa notið vinsælda og má þar nefna lögfræðinginn Saul Goodman en um hann voru gerðir þættirnir Better Call Saul sem hafa einnig notið vinsælda.

Hér að neðan má sjá stikluna úr kvikmyndinni en um er að ræða auglýsing sem birtist fyrst í kringum Emmy-verðlaunahátíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.