Ajax fékk á sig sex mörk í toppslag Arnar Geir Halldórsson skrifar 27. janúar 2019 15:44 Van Persie fór illa með Matthjis De Ligt og félaga vísir/getty
Stórleikur Ajax og Feyenoord í hollenska boltanum stóð svo sannarlega undir væntingum, í það minnsta fyrir alla aðra en stuðningsmenn Ajax en þessi stórveldi áttust við í toppslag í hollensku úrvalsdeildinni í dag á hinum sögufræga De Kuip leikvangi í Rotterdam. Daninn Lasse Schöne kom Ajax yfir snemma leiks en Jens Toornstra var snöggur að svara fyrir heimamenn. Steven Berghuis kom Feyenoord svo yfir eftir hálftíma leik en Hakim Ziyech svaraði af bragði fyrir gestina. Gamla brýnið Robin van Persie sá svo til þess að Feyenoord færi með forystu í leikhléið. Í síðari hálfleik héldu heimamenn áfram að raða inn mörkum. Van Persie var aftur að verki á 54.mínútu og kom Feyenoord í 4-2 áður en Tonny Vilhena og Yassine Ayoub fullkomnuðu niðurlægingu Ajax á síðasta stundarfjórðungnum. Lokatölur 6-2 fyrir Feyenoord. Frábær úrslit fyrir þriðja risann, PSV Eindhoven en þeir tróna á toppi deildarinnar með fimm stigum meira en Ajax sem er í öðru sæti. Þrátt fyrir sigurinn í dag er Feyenoord átta stigum á eftir Ajax en þessi þrjú lið eru í algjörum sérflokki í þremur efstu sætum deildarinnar. Á sama tíma vann Willem II 0-1 útisigur á Utrecht þar sem Kristófer Ingi Kristinsson sat allan tímann á varamannabekknum.
Fótbolti Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótboltaráðstefna Norðurlanda í Reykjavík næsta vor Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fram fær liðsstyrk úr Breiðholti „Þetta er dýrmætur tími og maður finnur hvað þetta skiptir mann miklu máli“ Gísli Gottskálk verðlaunaður með nýjum samningi Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Tímabilið búið hjá Rodri Hermann hættur með ÍBV Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Bestu guttarnir í Bestu deild karla Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Sjá meira