Bottas hrósaði sigri í kappakstrinum í Aserbaídsjan í gær og Hamilton varð annar. Þeir hafa unnið sitt hvorar tvær keppninnar það sem af er tímabili.
Ekkert lið hefur byrjað tímabil á því að taka fyrstu tvö sætin í jafn mörgum keppnum í röð og Mercedes í ár.
No team has ever started the season with 4 straight one-two finishes
And @MercedesAMGF1
are now one away from equalling their best run of 5 in a row#AzerbaijanGP#F1pic.twitter.com/zBxz8hoU48
— Formula 1 (@F1) April 29, 2019
Williams átti gamla metið en ökumenn liðsins enduðu í tveimur efstu sætunum í fyrstu þremur keppnunum 1992. Bretinn Nigel Mansell vann fyrstu fimm keppnirnar það tímabil. Liðsfélagi hans, Ítalinn Riccardo Patrese, endaði í 2. sæti í fyrstu þremur keppnunum 1992. Hann náði ekki að klára fjórðu keppni tímabilsins og Michael Schumacher á Benetton tók 2. sætið.
Mansell vann öruggan sigur í keppni ökumanna 1992. Hann fékk 108 stig, 52 stigum meira en Patrese. Schumacher varð svo þriðji með 53 stig.
Ef Hamilton og Bottas enda í tveimur efstu sætunum í kappakstrinum í Barcelona um þarnæstu helgi jafnar Mercedes metið yfir flest skipti í röð sem lið hefur átt ökumenn í efstu tveimur sætunum. Mercedes náði því 2014 og 2015-16 og Ferrari 1952 og 2002.
Bottas er efstur í keppni ökumanna með 87 stig, einu stigi á undan heimsmeistaranum Hamilton. Sebastian Vettel á Ferrari er þriðji með 52 stig.
Mercedes er með yfirburðaforystu í keppni bílasmiðla. Mercedes hefur náð í 173 stig en Ferrari er í 2. sætinu með 99 stig. Red Bull er í því þriðja með 64 stig.