Fótbolti

Ramos: Messi tók þessu illa

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það var heitt í hamsi á milli Ramos og Messi
Það var heitt í hamsi á milli Ramos og Messi vísir/getty
Stuðningsmenn Barcelona vildu margir sjá Sergio Ramos fjúka út af í leik Barcelona og Real Madrid í gærkvöld fyrir að slá Lionel Messi í andlitið.

Dómarinn taldi þetta óviljaverk og dæmdi ekki neitt, en Ramos virtist gefa Messi olnbogaskot í andlitið.

„Svona lagað gerist. Ég ætlaði ekki að fara í hann, en hann tók þessu illa og lá í jörðinni,“ sagði Ramos en þeir tveir áttu í orðaskiptum eftir atvikið.

Gerard Pique sagði eftir leikinn að „það blæddi úr vörinni á Leo. Þetta var harkalegt frá Ramos og fyrir mér var þetta rautt spjald.“

Barcelona vann leikinn 1-0 með marki frá Ivan Rakitic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×