Fótbolti

Balotelli fagnaði marki með Instagram færslu í miðjum leik

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Fagnið fræga
Fagnið fræga vísir/getty
Ítalski sóknarmaðurinn Mario Balotelli er ekki bara lunkinn markaskorari heldur líka einn skrautlegasti karakter sem spilað hefur leikinn og hann minnti rækilega á sig í kvöld en hann hélt uppteknum hætti í markaskorun hjá Marseille og fagnaði því á skemmtilegan hátt.

Balotelli gekk til liðs við Marseille í janúar og hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga þar eftir erfiða mánuði undir stjórn Patrick Vieira hjá Nice.

Þessi 28 ára gamli Ítali kom Marseille yfir gegn St.Etienne á 12.mínútu. Í kjölfarið hljóp hann til ljósmyndara sem var að störfum fyrir aftan markið en Balotelli hafði greinilega látið hann hafa símann sinn fyrir leik því Balotelli fékk símann og hlóð inn myndbandi á Instagram reikning sinn í miðjum leik.

Leiknum lauk nú rétt í þessu og fór Marseille með 2-0 sigur af hólmi en þetta var fjórða mark Balotelli í þeim sex leikjum sem hann hefur leikið fyrir Marseille.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×