Lögreglan reif niður fána Óskabarna ógæfunnar Jakob Bjarnar skrifar 28. október 2019 13:20 Vignir Rafn hefur samúð með lögreglunni með að hafa ruglast í ríminu og segir hana hafa verið kurteisa. En, hún hefði ekki átt að framfylgja vitleysunni. visir/vilhelm
Meðan 4. sýningin var yfirstandandi á leikritinu Rocky á sviði Tjarnarbíós í gærkvöldi gekk heilmikið á frammi í anddyri leikhússins. Þar birtust óvænt þungbúnir lögregluþjónar og skipuðu þeim sem starfar í afgreiðslunni að taka umsvifalaust niður fána sem blakti fyrir utan húsið. Þeir töldu að þarna væri íslenski fáninn og þannig væri verið að brjóta fánalögin. Samkvæmt þeim má aðeins nota fánann við sérstök tækifæri. Meinið er hins vegar það að þarna var alls ekki íslenski fáninn við hún heldur fáni leikhópsins en það breytti engu. Lögreglan krafðist þess að fáninn væri tekinn niður.Sýningin hefur hlotið afar góða dóma en hún er til sýninga í Tjarnarbíó og ekki margar sýningar eftir. Hér má sjá Vigni ásamt Sveini Ólafi leikara sem sagður er fara á kostum í sýningunni.„Nei, það skipti þá engu máli,“ segir Vignir Rafn Valþórsson, leikstjóri sýningarinnar sem hefur fengið afar lofsamlega dóma, sögð ein besta pólitíska ádeila sem sést hefur íslensku leiksviði í háa herrans tíð. Vignir Rafn lýsir því nánar hvað gekk á fyrir Vísi en hann telur lögregluna þarna á hálum ís. „Þegar við komum út af sýningunni var þar frammi ungur maður í sjokki. Þetta er útlenskur maður sem vinnur á barnum. Það komu þarna inn fílefldir lögreglumenn en við erum með stóran og mikinn fána sem blaktir fyrir utan Tjarnarbíó þar sem við erum að sýna. Þeir vildu meina að þarna væru brot á fánalögum en þeir stóðu í þeirri trú í fyrstu að þetta væri íslenski fáninn. Þetta er bara alls ekki íslenski fáninn. Þetta er fáni Óskabarna ógæfunnar, leikhópsins okkar, sem vissulega svipar til hins íslenska. En, hann er svartur með hvítum og rauðum krossi. Skiljanlegt að strákunum hafi fundist þetta skrítið,“ segir leikstjórinn.Lögreglan gaf sig ekki þó henni hafi orðið á Vignir Rafn hefur fullan skilning á því að þeir hafi ruglast á fánunum en honum þykir sérkennilegt að þegar á þetta hafi verið bent hafi lögregluþjónarnir ekki séð villur síns vegar. „Þegar þeim var bent á að þetta væri svona fannst þeim þetta enn alvarlegra. Sem er verra. Þeir gáfu sig ekki, hinn ungi afgreiðslumaður þurfti að skríða upp á loft til að eiga við fánann. Hann kunni ekki alveg á þetta og það endaði á því að hann tók niður alla fánastöngina, bara eins og hún lagði sig. Þeir voru tveir að baksa við þetta.“ Í anddyrinu hangir uppi myndlistarsýning sem tengist leiksýningunni og þar mátti sá annan fána leikhópsins sem lögreglan virti lengi fyrir sér ábúðarfull. Og var á báðum áttum, hvort ekki væri vert að fjarlægja þann fána einnig. Á endanum veitti lögreglan þó leyfi fyrir honum.Hafa má samúð með lögreglunni að hafa tekið ruglað saman fáununum, þeim svipar til hvors annars í rökkrinu.„Já, þetta er svona listgagnrýnandi innan lögreglunnar,“ segir Vignir Rafn og er hugsi. Hann tekur skýrt fram að lögregluþjónarnir hafi verið afar kurteisir. En mjög ákveðnir. Harðir en kurteisir. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leikhópurinn Óskabörn ógæfunnar lendir í stælum vegna fánanotkunar. Þegar Illska var sett upp var íslenski fáninn settur upp og töldu ýmsir þar farið yfir strik þó ekkert mál varð úr því. „Enda, ef maður pælir í því þá er fáni náttúrlega ekkert annað en tuskur í mismunandi litum saumaðar saman. Maður ætti ekki að leggja neina að aðra merkingu í það,“ segir Vignir Rafn. En, auðvitað búum við fánalög þó til standi að gera einhverjar breytingar á þeim í nýju stjórnafrumvarpi.Ótrúleg lög fánalögin „Þetta eru ótrúleg lög, fánalögin, þau eru alveg mögnuð. Fáninn má ekki hanga uppi eftir sólsetur. En fulllangt gengið þegar lögreglan, vitandi að þetta var ekki íslenski fáninn, vill rífa hann niður,“ segir leikstjórinn.„Þeir hefðu þeir átt að biðjast afsökunar og fá sér kaffi. En, þetta rímar reyndar ágætlega við verkið,“ segir Vignir Rafn sem ætlar sér ekki að gera neitt í málinu. Þótt hann sé sannfærður um að þarna hafi lögreglan farið yfir strikið. Þetta standist ekki. „Lögreglan ræður ekki því hvað þú hengir utan á húsið sitt. En, þeir voru kurteisir,“ segir Vignir Rafn og það telur. Vignir Rafn segir það merkilegt hversu erfitt menn eigi með að bakka þó fyrir liggi að þeir hafi rangt fyrir sér. Það á við um ýmislegt annað en þennan gjörning.
Alþingi Leikhús Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Mexíkó og Kanada svara tollum Trump með sínum eigin Erlent Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Veður Sakar Helgu um „helvítis lygar“ Innlent Þung staða og „ekki hægt að útiloka“ verkföll í fyrramálið Innlent Grænlendingar í sókn frekar en vörn þökk sé Trump Innlent Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Innlent Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Innlent Hættir sem formaður Siðmenntar Innlent Klakastykki stórskemmdi bíl Innlent Fleiri fréttir Óbreytt staða í Karphúsinu Hættir sem formaður Siðmenntar Sakar Helgu um „helvítis lygar“ Um 500 nýjar íbúðir byggðar í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Grænlendingar í sókn frekar en vörn þökk sé Trump Þung staða og „ekki hægt að útiloka“ verkföll í fyrramálið Hvað þýðir tollastríð Trumps fyrir Ísland? Hagræðingartillögur, styrkir til flokkanna og Grænland á Sprengisandi Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Ógnaði fólki með barefli í bænum Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Klakastykki stórskemmdi bíl Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Ærandi þögn í Karphúsinu, fangaskipti og biðlistar sem lengjast Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Viðræður á viðkvæmu stigi og fjölmiðlafólki hent út Loðnuleitin skilaði enn lægri mælingu og engar veiðar ráðlagðar Annasamt hjá björgunarsveitum vegna ofsaveðurs Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Óskandi að hægt væri að ljúka deilunni í dag Nokkur krapaflóð fallið yfir vegi og óvissustig vegna flóðahættu Baráttukonur minnast Ólafar Töru Bæjarskrifstofur og heimili rýmd „Búið að vera mjög mikið að gera síðasta sólarhringinn“ Vatnsleki, fjúkandi þakplötur og ófærir ökumenn Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Stórir pollar leika bílstjóra grátt Hellisheiði opin á ný Sjá meira