Opinberar tölur kínverskra stjórnvalda benda til þess að losun gróðurhúsalofttegunda í Kína hafi aukist um rúman helming frá 2005 til 2014. Kínverjar hafa sagst stefna á því að losunin nái hámarki árið 2030 og minnki þaðan í frá.
Reuters-fréttastofan segir að ógegnsæi ríki alla jafna um mengun í Kína. Nýjustu losunartölurnar eru þær sem kínversk stjórnvöld skiluðu vegna loftslagssáttmála Sameinuðu þjóðanna. Alls nam losunin 12,3 milljörðum tonna af koltvísýringi og jókst hún um 53,5% á áratug.
Ekki er tekið tillit til landnotkunar í þeim tölum. Kínverska umhverfisráðuneytið heldur því fram að sé tekið tillit til bindingar skóga og annars gróðurs hafi nettó losunin numið 11,2 milljörðum tonna. Það er engu að síður 17% aukning frá 2010.
Áætlað hefur verið að losun Kínverja hafi náð 9,54 milljörðum tonna árið 2013 og hafði þá aldrei verið meiri. Rannsókn sem birtist í vísindaritinu Nature Geoscience taldi að losunin hefði dregist saman næstu þrjú árin á eftir vegna samdráttar í eftirspurn eftir orku. Hún hefur síðan aukist aftur.
Kínverjar eru stórtækustu losendur gróðurhúsalofttegunda sem valda loftslagsbreytingum í heiminum, á undan Bandaríkjunum.
Losun Kínverja jókst um helming á áratug
Tengdar fréttir
Loftslagsmarkmið líklega brostið með núverandi orkuverum
Ný rannsókn bendir til þess að losun þeirra innviða sem nú þegar eru til staðar þýði að hnattræn hlýnun verði meiri en 1,5 gráður á þessari öld.