Ólga hefur verið innan Sjálfstæðisflokksins vegna orkupakkamálsins og hefur Davíð Oddson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi formaður, verið óvæginn í garð forrystunar í ritstjórnarskrifum. Þá hefur nokkuð verið um úrsagnir þekktra Sjálfstæðismanna.
Meðal þeirra eru Bolli Kristinsson, sem hefur verið kenndur við verslunina Sautján og lengi verið bakhjarl flokksins. Rætt hefur verið um fjöldaúrsagnir á samfélagsmiðlum en flokkurinn hefur ekki veitt nánari upplýsingar um tölur.
Í Bítinu í vikunni spáði Bolli Kristinsson fylgishruni í næstu kosningum.
„Sjálfstæðisflokkurinn er algjörlega á villigötum með núverandi forrystu og hefur minnkað fylgið á tíu til tólf árum úr ca. 36 prósentum. Ég myndi halda, ef það yrði kosið í dag, að þá færum við niður í 15-18%," sagði Bolli.
Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi málið í Sprengisandi í morgun. Hann sagði að það hefði legið ljóst fyrir um langa hríð að orkupakkinn yrði umdeildur innan flokksins.
„Niðurstaðan hins vegar, bæði við ríkisstjórnarborðið og í þingfloki, var að það væri ekki neitt í þessu máli sem kallaði á þessi hörðu viðbrögð," segir Birgir.

„Við höfum oft verið, við sem erum þingsins megin í þessum efnum, ósáttir við hvernig málin hafa verið sett fram af hálfu ritstjóra Morgunblaðsins í ritstjórnarskrifum og teljum að það sé verið að magna upp áhyggjur af þáttum sem ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af," segir Birgir.
Það vakti athygli þegar Bjarni Benediktsson formaður birti grein í tilefni níutíu ára afmælis flokksin í Fréttablaðinu en ekki Morgunblaðinu.
„Auðvitað er það þannig að pirringur getur virkað í báðar áttir. Í aðdragandanum höfðu komið fram í ritstjórnargreinum Morgunblaðsins mjög miklar árásir á forrystu flokksins.
Gagnrýni Davíðs Oddssonar reynist mörgum sérstaklega erfið. „Það gerir þetta mál svona erfitt tilfinningalega fyrir marga flokksmenn," segir Birgir.
Hann segist þó ekki eiga von á uppgjöri innan flokksins vegna málsins.
„Ekki uppgjör í þeim skilningi að við séum að sjá menn labba hver í sína áttina, skella hurðum og þess háttar. Ég hef ekki trú á því."
Atkvæði verða greidd um þriðja orkupakkann 2. september og Birgir segir þingmenn þurfa að fara vel yfir málið með Sjálfstæðismönnum fyrir þann tíma.
„Menn hafa grafið sig svolítið djúpt í skotgrafirnar þannig ég held það verði ekkert áhlaupaverk. Hins vegar held ég að það sé vel gerlegt," segir Birgir.