Þeir Kári Gunnarsson og Davíð Bjarni Björnsson eru komnir í úrslit í tvíliðaleik karla í badminton á Reykjavíkurleikunum, RSL Iceland International. Sigruðu þeir par frá Danmörku í undanúrslitum.
Kári og Davíð Bjarni mættu þeim Rasmus Skovborg og Søren Toft í undanúrslitum. Var sigurinn sanngjarn en þeir unnu bæði sett dagsins með 21 stigi gegn 16.
Í úrslitum mæta þeir Anton Monnberg og Jesper Paul frá Finnlandi sem voru fyrirfram taldir sterkasta par mótsins.
Alls voru tvö önnur íslensk pör að spila í undanúrslitum í morgun. Daníel Jóhannsson og Sigríður Árnadóttir töpuðu í oddaleik gegn pari frá Englandi í tvenndarleik. Þá töpuðu þær Karolina Prus og Júlíana Karítas Jóhannsdóttir einnig fyrir ensku pari í tvíliðaleik kvenna.
Á tournamentsoftware.com má sjá yfirlit yfir leiki dagsins í TBR húsinu. Sýnt verður beint frá úrslitunum sem hefjast klukkan 15:30 á Youtube rás Badmintonsambands Íslands.
Sigruðu Dani í undanúrslitum
