Innlent

Bíl ekið nánast inn í Krónuna í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. MYND/Óskar P. Friðriksson

Engan sakaði þegar bíl var ekið nánast inn í verslunina Krónuna í Vestmannaeyjum í gærdag, og glerbrotum úr útidyrum ringdi inn í verslunina.

Eitthvað var af fólki í versluninni þegar þetta gerðist, en svo vel vildi til að engin var á útleið, því bíllinn ók á rafstýrðar útgöngudyrnar og fór hálfur inn í búðina.

Ökumanninum fipaðist eitthvað þegar hann ætlaði að nema staðar fyrir utan, með þessum afleiðingum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×