Handbolti

Hannes Jón á leið til Danmerkur á ný

Hannes Jón Jónsson
Hannes Jón Jónsson Mynd/Pjetur
Landsliðsmaðurinn Hannes Jón Jónsson sem leikið hefur með handknattleiksliði Elverum í Noregi, er á leið til Danmerkur á nýjan leik skv heimildum Vísis. Hannes, sem sýnt hefur lipra takta með íslenska landsliðinu í síðustu leikjum, mun á næstu leiktíð leika með Fredericia HK sem endaði í níunda sæti í dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Þar mun Hannes leika með fyrrum uppeldisfélaga sínum og samherja úr Val, Fannari Þorbjörnssyni, en Hannes þótti leika vel þegar hann var á mála hjá Ajax í Danmörku og gerði enn betur með Elverum í Noregi í vetur. Gunnar Petterson landsliðsþjálfari Norðmanna var afar hrifinn af framlagi Hannesar í Norska boltanum og lét hafa eftir sér að hann ætti skilið tækifæri með íslenska landsliðinu - og það gekk eftir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×