Innlent

Hvetja fólk til að kynna sér aðstæður vel áður en lagt er af stað

Mynd úr safni
Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur vegfarendur til að keyra varlega um hálendið og þá sérstaklega Fjallabaksleið nyrðri í ljósi þess að þjóðvegur eitt verður í sundur um sinn sunnan Mýrdalsjökuls. Búast má við aukinni umferð á svæðinu og jafnvel um Sprengisandsleiðina líka. Ferðmenn eru hvattir til að kynna sér aðstæður vel áður en lagt er í hann, til dæmis á heimasíðu vegagerðarinnar.

Í tilkynningu segir að sem fyrr séu björgunarsveitir félagsins til taks í Hálendisvaktinni og eru staðsettar að Fjallabaki, á Sprengisandi, á Kjalvegi og norðan Vatnajökuls. Þurfi ferðalangar á aðstoð að halda skal hafa samband við Neyðarlínu í númerinu 112 sem kemur hjálparbeiðnum áleiðis á rétta staði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×