Innlent

Þung umferð á Suðurlandi

Mikil umferð hefur verið í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í dag en um tíu þúsund manns voru á útihátíð Gaddstaðaflötum við Hellu um helgina. Varðstjóri lögreglunnar segir að umferðin hafi gengið mjög vel fyrir sig og að ökumenn séu almennt þolinmóðir.

Einn var tekinn grunaður um ölvun við akstur um klukkan ellefu morgun og þá stöðvaði lögreglan Hvolsvelli annan ökumann um klukkan fjögur í dag en sá var einnig grunaður um ölvunarakstur. Lögreglan á Hvolsvelli bauð hátíðargestum upp á að blása í áfengismæla áður lagt var af stað. Margir ákváðu að bíða með heimferð að sögn lögreglu eftir að hafa blásið í mælinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×