Svona verður fyrirkomulagið í sundlaugunum 18. maí Kristín Ólafsdóttir skrifar 13. maí 2020 15:06 Frá Laugardalslaug. Landsmenn bíða eflaust margir í ofvæni eftir því að dýfa sér á ný í laugarnar. Vísir/vilhelm
Sóttvarnalæknir mun leggja það til að fjöldi gesta í sundlaugum, sem ráðgert er að opni á ný eftir samkomubann nú á mánudaginn, fari fyrst um sinn ekki yfir helmingsfjölda gesta sem starfsleyfi hverrar laugar kveður á um. Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarna vegna kórónuveirunnar í dag. Sundlaugar landsins hafa verið lokaðar síðan 24. mars en tilkynnt var í byrjun þessa mánaðar að þær yrðu opnaðar á ný 18. maí. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á fundinum í dag að hann myndi reyna að senda heilbrigðisráðherra tillögur um fyrirkomulag við opnun sundstaða í dag. Hann myndi þar leggja til að fjöldi sundlaugargesta fari ekki yfir helmingsfjölda þeirra gesta sem leyfi er fyrir, eða staðurinn getur tekið á móti. Einnig verði tveggja metra fjarlægðarmörk virt eins og kostur er. „Hugmyndin er síðan hjá mér að það væri hægt að auka fjölda gesta fram til 15. júní, kannski í einu viðbótarskrefi en þá muni vonandi vera hægt að leyfa hámarksfjölda. Allt er þetta náttúrulega háð því að það gangi vel með faraldurinn áfram,“ sagði Þórólfur. Þá sagði hann leiðbeiningar starfshóps um sundstaði nú á lokametrunum. Þær verði vonandi hægt að birta á morgun. Líkamsræktarstöðvar má svo opna á ný 25. maí. Þórólfur hyggst leggja til hið sama um þær, þ.e. að hámarksfjöldi gesta miðist við helmingsfjölda sem leyfi hverrar stöðvar kveður á um. Þá gefi stöðvarnar áfram kost á tveggja metra reglunum.
Sundlaugar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Mest lesið Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent „Fólk er einfaldlega hrætt“ Erlent Leitin að Slater blásin af Erlent „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Innlent Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Innlent Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Innlent Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Innlent Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Innlent Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Innlent Fleiri fréttir Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Séra Arna Ýrr tekur við af verðandi biskupi Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Tónlistarveisla framundan í Skálholti Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Kosningar, uppbygging í Grafarvogi og hálendisvakt „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Samsæriskenningar, borgarstjóri um húsnæðismál og kosningar Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Riðu um miðbæinn til að fagna Landsmóti Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum 82 ára snillingur í Hafnarfirði í hannyrðum „Hann á að vera hér á Íslandi“ Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi Rændi fötum fyrir nánast hundrað þúsund Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Séra Aldís Rut ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakall Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Rabarabarahátíð í gamla bænum á Blönduósi Býst ekki við nýju eldgosi Hyggst ekki flýta bílabanni og efasemdir um nýtt eldgos Stútar á rafhlaupahjólum handteknir og mega búast við sektum Sjá meira