Innlent

Jafnmargir hafa náð bata og eru í einangrun

Andri Eysteinsson skrifar
_VIL4165 (2)(1)
Vísir/Vilhelm

Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur Covid-19-sjúkdómnum eru nú alls 1.689 hér á landi. Staðfestum smitum fjölgaði um 14 frá því að síðustu tölur birtust á covid.is klukkan eitt í gær.

Þá eru 40 nú á sjúkrahúsi og 11 á gjörgæslu vegna COVID-19. Alls hefur 841 manns batnað af veikinni. Þá eru 3.080 manns í sóttkví og 841 í einangrun. 15.498 hafa lokið sóttkví. Sýni sem hafa verið tekin eru orðin 34.125 talsins. Átta dauðsföll hafa verið staðfest vegna kórónuveirusmits.

Klukkan tvö verður haldinn upplýsingafundur almannavarna og landlæknis þar sem farið verður yfir stöðu mála í sambandi við faraldurinn og farið yfir aðgerðir til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.

Gestir fundarins verða Páll Matthíasson forstjóri Landspítala og Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×