Þakkar heilbrigðisstarfsfólki fyrir að hafa bjargað lífi sínu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 12. apríl 2020 09:24 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er útskrifaður af gjörgæslu. Vísir/EPA
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sem nýverið var lagður inn á gjörgæslu með Covid-19, segist eiga heilbrigðisstarfsfólki í Bretlandi mikið að þakka. Það hafi hreinlega bjargað lífi hans. Í yfirlýsingu sem gefin var út af skrifstofu ráðherrans, er heilbrigðisstarfsfólki á St. Thomas-spítala í London þakkað fyrir að annast Johnson, en hann var lagður inn á gjörgæslu vegna alvarlegra veikinda sinna af Covid-19 síðastliðinn sunnudag. Hann eyddi þar þremur nóttum en fór þó aldrei í öndunarvél og er nú á batavegi. „Ég get ekki þakkað þeim nægilega fyrir. Ég á þeim líf mitt að launa,“ segir meðal annars í yfirlýsingu forsætisráðherrans. Þrátt fyrir að vera orðinn betri af veikindum sínum hefur Johnson ekki snúið aftur til starfa sem forsætisráðherra, og ekki liggur fyrir hvenær af því verður. Þessa stundin einbeitir hann sér að því að ná fullum bata. Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands, sinnir störfum forsætisráðherra á meðan, að ósk Johnson. Þegar þetta er skrifað hafa rétt tæplega 79 þúsund tilfelli kórónuveiru verið staðfest í Bretlandi. 9875 hafa þá látist af völdum Covid- 19, sjúkdómnum sem veiran veldur.
Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Erlent Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Erlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Ökumaður með hníf og kylfu en farþegi með heimatilbúnar sprengjur Innlent Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Fleiri fréttir Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Sjá meira