Innlent

Trúnaðar­skylda presta horn­steinn í sam­bandi þeirra við skjól­stæðinga

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
„Erfiðleikar og gleðistundir – sorg og sigrar eru allt kaflar í lífi mannsins. Presturinn hlustar, leiðbeinir, samgleðst og aðstoðar og gengur veginn fram með skjólstæðingum sínum. Í ljósi þessa er trúnaðarskylda presta hornsteinn í samandi þeirra við sóknarbörn og aðra skjólstæðinga.“
„Erfiðleikar og gleðistundir – sorg og sigrar eru allt kaflar í lífi mannsins. Presturinn hlustar, leiðbeinir, samgleðst og aðstoðar og gengur veginn fram með skjólstæðingum sínum. Í ljósi þessa er trúnaðarskylda presta hornsteinn í samandi þeirra við sóknarbörn og aðra skjólstæðinga.“ Vísir/Vilhelm

„Rjúfi prestur trúnaðarskyldu gagnvart einhverjum skjólstæðingi sínum er það alvarlegt mál sem varðar við starfs- og siðareglur presta.“ Þetta segir í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni um trúnaðarskildu presta en umræða fór af stað um hana vegna ásakana Skírnis Garðarsonar prests á hendur konunnar sem grunuð er um skjalafals í bakvarðasveit á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík.

Skírnir sakar konuna um að hafa beitt svikum til þess að fá fjárhagsaðstoð úr líknarsjóði Lágafellskirkju árið 2013 þegar hann var prestur í sókninni. Konan kærði hann síðar fyrir brot á persónuverndarlögum, ásamt starfsmanni Mosfellsbæjar, eftir að hann lét kanna hvort hún segði rétt frá.

Í tilkynningunni frá Þjóðkirkjunni segir að prestar gegni afar sérstöku hlutverki þegar kemur að trúnaði gagnvart skjólstæðingum sínum. Það sé í eðli starfsins að vera hlustandi þegar hugur, sál og hjarta þurfi að tala um sín innstu mál.

„Erfiðleikar og gleðistundir – sorg og sigrar eru allt kaflar í lífi mannsins. Presturinn hlustar, leiðbeinir, samgleðst og aðstoðar og gengur veginn fram með skjólstæðingum sínum. Í ljósi þessa er trúnaðarskylda presta hornsteinn í samandi þeirra við sóknarbörn og aðra skjólstæðinga.“

Þá kemur fram að prestum beri skylda að tilkynna öll saknæm mál er varða börn og ungmenni. Að öllu öðru leiti geymi prestur lífsögu manna hjá sjálfum sér, virði trúnaðarskyldu sína og köllun.

Einnig kemur fram að málið sem um ræðir sé í forgangi innan kirkjunnar og að niðurstöðu sé að vænta innan tíðar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×