Innlent

Ekkert smit sjötta daginn í röð og aðeins þrjú virk smit

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Alls hafa 57.187 sýni verið tekin.
Alls hafa 57.187 sýni verið tekin. Vísir/Vilhelm

Enginn greindist með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn hér á landi, sjötta daginn í röð, samkvæmt nýjum tölum á Covid.is. Staðfest smit eru því, líkt og undanfarið, 1.802. Þá eru virk smit á landinu aðeins þrjú, og fækkar þeim því um helming frá því í gær.

Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans tók 121 sýni og 184 voru tekin hjá Íslenskri erfðagreiningu. Ekkert þeirra reyndist jákvætt. Alls hafa nú verið tekin 57.187 sýni frá upphafi faraldursins.

Enginn liggur inni á sjúkrahúsi með Covid-19 þessa stundina og hafa 1.789 náð bata. Fólki í sóttkví fjölgar hins vegar á milli daga, úr 532 í 727. Alls hafa nú 20.103 lokið sóttkví.

Tíu hafa látist af völdum veirunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×