Fyrrverandi yfirmaður danska hersins dæmdur í fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 19. maí 2020 14:23 Mathiesen tók við stöðu yfirmanns hersins árið 2014, en var látinn hætta eftir að upp komst um málið árið 2018. Wikipedia commons
Dómstóll í Viborg í Danmörku hefur dæmt Hans-Christian Mathiesen, fyrrverandi yfirmann danska hersins, í sextíu daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa misnotað vald sitt. Danskir fjölmiðlar segja hann hafa breytt inntökuskilyrðum í herinn til að greiða leið fyrir kærustu sína til að hún fengi þar stöðu. Verjandi Mathiesen segir að dómnum hafi verið áfrýjað á staðnum. Dómurinn var einróma í afstöðu sinni um sekt Mathiesen, en ekki um lengd refsingar. Tveir dómaranna vildu sextíu daga fangelsisdóm, en sá þriðji vildi að Mathiesen yrði dæmdur í níutíu daga fangelsi. Auk þess að vera dæmdur fyrir valdamisnotkun var hann dæmdur fyrir vanrækslu í starfi og fyrir að hafa látið trúnaðarupplýsingar af hendi. Mathiesen tók við stöðu yfirmanns hersins árið 2014, en var látinn hætta eftir að upp komst um málið árið 2018.
Danmörk Mest lesið Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Máttu ekki banna fréttamenn AP Erlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Innlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Erlent Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Innlent Fyrsta langreyðurin á vertíðinni háði 35 mínútna dauðastríð Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Sjá meira