Heldur því fram að Sadio Mane og Mo Salah þoli ekki hvor annan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2020 08:30 Sadio Mane og Mohamed Salah eru Liverpool liðinu gríðarlega mikilvægir. Getty/ Gonzalo Arroyo
Þetta gæti orðið erfitt sumar fyrir Liverpool ef marka má orð fyrrum sjónvarpsmanns Sky Sports og núverandi starfsmanns BeIN Sports. Hann óttast það að lið eins og Barcelona og Real Madrid muni reyna að kaupa stærstu stjörnur liðsins. Richard Keys var lengi hjá Sky Sports en er núna hjá BeIN Sports. Hann hefur því heilmikil sambönd innan ensku félaganna. Hann heldur því nú fram að það sé skelfilegt samband á milli tveggja bestu leikmanna Liverpool liðsins. Keys segir að Senegalinn Sadio Mane og Egyptinn Mo Salah þoli hreinlega ekki hvor annan og þeir yrðu báðir mun ánægðari hjá Liverpool ef hinn yrði seldur í sumar. „Ekki trúa því sem þeir segja ykkur að Mane og Salah hafi ekki tíma fyrir hvorn annan. Það er miklu verra en það. Þeir líkar mjög illa við hvorn annan. Báðir yrðu þeir mun ánægðari að spila með liði án hins,“ sagði Richard Keys. „Vill Liverpool selja annan og halda hinum. Ég myndi halda það en ég held samt að þeir séu báðir á leiðinni frá félaginu,“ sagði Keys. „Ég held að Barcelona láti á það reyna hversu mikið Liverpool vill halda Mane. Hvað annað gæti hann unnið með Liverpool? Ég held líka að Salah hugsi eins ef Real Madrid vill fá hann,“ sagði Keys og hann spáir erfiðu sumri. „Ég býst við því að Liverpool þurfi að fara í stríð til að halda öllum sínum bestu mönnum. Ekki mönnum eins og Henderson, Robertson eða Milner heldur mönnum eins og Salah, Mane og Van Dijk,“ sagði Keys.
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira