Stöðvaði fimmtán ára ökumann sem hafði boðið félögunum á rúntinn Atli Ísleifsson skrifar 26. maí 2020 11:00 Rætt var við foreldra drengjanna og málið tilkynnt til barnaverndarnefndar. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í nótt fimmtán ára ökumann sem hafði boðið tveimur félögum sínum á rúntinn. Í tilkynningu frá lögreglu segir að rætt hafi verið við foreldra drengjanna og málið tilkynnt til barnaverndarnefndar. Í tilkynningunni segir ennfremur að allmargir ökumenn hafi verið staðnir að hraðakstri í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. „Sá sem hraðast ók mældist á 139 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann var jafnframt grunaður um ölvunarakstur og var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Höfð voru afskipti af níu ökumönnum sem óku á negldum dekkjum og voru tveir þeirra án ökuréttinda. Þrír óku með filmur í fremri hliðarrúðum bifreiða sinna og þurfa þeir að færa þær til skoðunar. Loks voru höfð afskipti af ökumann sem var með tvö börn í aftursæti bifreiðar sinnar, annað í barnabílstól en hvorugt þeirra í belti. Tveir ökumenn óku svo á ljósastaura og var annar þeirra grunaður um ölvunarakstur,“ segir í tilkynningunni.
Lögreglumál Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Pilturinn áfram bak við lás og slá Sjá meira