Viðskipti innlent

Telur vaxta­lækkun Seðla­bankans hafa skilað sér seint og illa til al­mennings og fyrir­tækja

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Ragnar Þór Ingólsson formaður VR
Ragnar Þór Ingólsson formaður VR Vísir/Egill Aðalsteinsson

Formaður VR segir stórfeldar vaxtalækkanir Seðlabankans hafa skilað sér bæði seint og illa til almennings og fyrirtækja. Hann segir bæði banka og lífeyrissjóði skulda almenningi myndarlegri lækkun vaxta.

Í síðustu viku kynnti peningastefnunefnd núll komma sjötíu og fimm prósenta lækkun meginvaxta bankans. Vextirnir eru þannig komnir niður í eitt prósent og hafa aldrei verið lægri.

„Þetta hefur skilað sér mjög seint og illa til neytenda og ekki bara neytenda heldur líka fyrirtækja. Markmiðið með lífskjarasamningnum á sínum tíma var að ná niður vaxtastigi og það var og er eitt af þeim atriðum sem að mun standa og falla með endurskoðun lífskjarasamningana núna í haust,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.

„En það er ljóst að lækkun stýrivaxta hefur gert það af verkum að þessi hluti samningsins mun halda. Það er dapurlegt aftur á móti að horfa upp á það að þessar miklu lækkanir hafa ekki skilað sér til neytenda eða fyrirtækja nema í mjög litlum mæli,“ segir Ragnar Þór.

Nú þegar vikan er liðin frá stýrivaxtalækkun liggja stóru bankarnir þrír enn undir feldi og íhuga viðbrögð sín. Stýrivextir hafa fjórum sinnum verið lækkaðir í ár, alls um 2 prósentustig. Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn voru þá að jafnaði 2 til 5 daga að tilkynna um breytingar á vaxtakjörum sínum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu munu viðbrögð bankanna við síðustu vaxtaákvörðun Seðlabankans frá í síðustu viku væntanlega liggja fyrir á allra næstu dögum.

„Nú er búið að lækka bankaskattinn og það voru líka forsendur fyrir því að bankarnir töldu sig ekki geta lækkað vexti nægilega mikið þannig að við teljum okkur eiga inni mjög mikla lækkun hjá bæði bönkum og lífeyrissjóðum á vöxtum í landinu,“ segir Ragnar Þór.

„Sem að skipta okkar félagsmenn, fólkið í landinu, gríðarlegu máli. Þetta eru ráðstöfunartekjur upp á tugi þúsunda sem að við getum náð með frekari lækkun vaxta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×