Viðskipti innlent

Hildur María nýr úti­bús­stjóri í Mjódd

Atli Ísleifsson skrifar
Hildur María Jósteinsdóttir
Hildur María Jósteinsdóttir Landsbankinn

Hildur María Jósteinsdóttir hefur tekið við störfum sem útibússtjóri í útibúi Landsbankans í Mjódd í Breiðholti.

Í tilkynningu frá bankanum segir að Hildur María hafi hafið störf hjá Landsbankanum árið 2006, fyrst sem gjaldkeri og síðar þjónustufulltrúi og sérfræðingur í einstaklingsviðskiptum. 

„Hún hefur verið staðgengill útibússtjóra Landsbankans í Borgartúni frá 2014.

Hildur María hefur hlotið vottun sem fjármálaráðgjafi,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×