Segir Koulibaly að sniðganga United ef hann vill vinna eitthvað Anton Ingi Leifsson skrifar 9. júní 2020 12:30 Það verður spennandi að sjá hvað Koulibaly gerir í sumar. vísir/getty
Kalidou Koulibaly, miðvörður Napoli, á að velja það að ganga í raðir Liverpool eða Chelsea, en ekki í raðir Manchester United, ef hann hefur áhuga á því að vinna einhverja bikara. Þetta segir Frank Leboeuf. Kalidou Koulibaly mun að öllum líkindum yfirgefa Napoli í sumar en hann hefur verið orðaður við hin ýmis félög í Evrópu. Talið er að Napoli muni ekki selja hinn 28 ára gamla varnarmann fyrir minna en 89 milljónir punda. Frank Leboeuf, sem lék með Chelsea lengst af og Strasbourg í Frakklandi og fyrrum franskur landsliðsmaður, er alveg viss um það hvað Koulibaly eigi að velja. 'I want him to win some stuff'Frank Lebeouf urges Kalidou Koulibaly to snub Man United if he wants to lift trophieshttps://t.co/cGEBIUuTY5— MailOnline Sport (@MailSport) June 8, 2020 „Ég myndi aldrei ráðleggja honum að fara til Man. United af mörgum ástæðum. Ég vil að hann vinni eitthvað og ég held að Man. United sé ekki það félag sem þeir hafa verið og þeir eru ekki tilbúnir að vinna eitthvað,“ sagði hann í samtali við ESPN. „Ég held að Liverpool væri góður staður með Van Dijk. Þeir yrðu frábærir. PSG líka með Marquinhos, þeir yrðu frábærir. Ég held líka að Chelsea þurfi leikmann eins og hann. Ég veit ekki hvort hann hefði áhuga á því en þrátt fyrir að þeir séu með tvo mjög góða miðverði þá finnst mér Koulibaly vera á öðru gæðastigi og myndi henta vel.“ „Ég veit að hann hefur verið orðaður við Liverpool og hann og Van Dijk í vörninni. Guð minn góður. Þá yrði það annað rautt tímabilið, myndi ég halda. Hann og Van Dijk yrðu besta miðvarðapar í heimi.“
Ítalski boltinn Enski boltinn Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Körfubolti Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Handbolti Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Handbolti Fleiri fréttir Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Sjá meira