Tíska og hönnun

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall tvö

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Settið hjá Studio 2020 á Hafnartorgi.
Settið hjá Studio 2020 á Hafnartorgi. Mynd/HönnunarMars

Í hönnunarspjallþætti dagsins verður farið yfir sýningar og viðburði dagsins áður og það sem framundan er á HönnunarMars hátíðinni með vel völdum einstaklingum, sem og lifandi samtal um hönnun í ljósi hamfarahlýnunar, hraðra tækniframfara, samfélagsbreytinga og nú síðast covid 19.

Garðar Eyjólfsson ræðir við Erling Jóhannesson, gullsmið og forseti BÍL og Rósu Hrund Kristjánsdóttur, sköpunarstjóra hjá Hvíta Húsinu. Einnig talar Hlín Helga Guðlaugsdóttir við Helga Pjetur, frumkvöðul og hönnuð um smitrakningarappið, eitt besta dæmi um aðkomu og mikilvægi hönnuða í þverfaglegu samstarfi.

Þátturinn er sýndur í beinni útsendingu klukkan þrjú og verður þá hægt að horfa á hann í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Hönnunar­spjall STU­DIO 2020 - Rósa, Erling og Helgi Pjetur

Hönnunarspjallið er liður í dagskrá Studio 2020 á HönnunarMars, sem er tilraunavettvangur á HönnunarMars 2020, og ætlað er að miðla efni hátíðarinnar á ýmsu formi á meðan á henni stendur og í kjölfarið. Markmiðið er að veita innsýn í hugskot hönnuða, viðfangsefni og hugmyndir um framtíðina. Auk þess að hvetja til breiðs samtals um hönnun og arkitektúr. Alls verða þrír þættir og má sjá þátt gærdagsins HÉR. Allir þættirnir verða sýndir hér á Vísi.

Garðar Eyjólfsson ræðir við Erling Jóhannesson, gullsmið og forseta BÍL og Rósu Hrund Kristjánsdóttur, sköpunarstjóra hjá Hvíta Húsinu.Mynd/Studio 2020

Umsjón með hönnunarspjallinu hafa Hlín Helga Guðlaugsdóttir stjórnandi DesignTalks og Garðar Eyjólfsson fagstjóri meistaranáms í hönnun við LHÍ. Upptaka er í höndum Einars Egilssonar og útlit hefur Steinn Einar Jónsson hannað. Þriðji og síðasti þátturinn kemur á Vísi á morgun, laugardaginn 27. júní, klukkan 15:00. 

Hlín Helga Guðlaugsdóttir ræðir við Helga Pjetur, frumkvöðul og hönnuð MYnd/Studio 2020

HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.

HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars.


Tengdar fréttir

Studio 2020 á HönnunarMars: Hönnunarspjall eitt

Í hönnunarspjallþættinum verður farið yfir sýningar og viðburði HönnunarMars hátíðarinnar með vel völdum einstaklingum á meðan hátíðin stendur yfir sem og samtal um hönnun í ljósi hamfarahlýnunar, hraðra tækniframfara, samfélagsbreytinga og nú síðast covid 19.

Dagskrá HönnunarMars: Dagur þrjú

Hátíðin HönnunarMars 2020 er í fullum gangi og lýkur á sunnudag. Helgin í borginni verður stútfull af íslenskri hönnun og áhugaverðum viðburðum og sýningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.