Lífið

Oscar Leone frumsýnir myndband: Lagið fæddist eftir sambandsslitin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nýtt myndband frá Oscari Leone.
Nýtt myndband frá Oscari Leone.

Tónlistarmaðurinn Pétur Óskar Sigurðsson, sem margir þekkja sem Oscar Leone, frumsýnir í dag nýtt myndband við nýjasta lag hans Lion.

Vísir greindi frá útgáfu lagsins í síðustu viku en Pétur Óskar samdi lagið í sjálfsvorkunnarkasti.

„Lagið er, eins og svo oft áður, um stúlku og viðskilnað okkar. Á þessum tíma fannst mér hún hafa veðjað á rangan hest en nú eru þrjú ár liðin síðan ég samdi lagið og ég treysti almættinu alveg fyrir ákvörðun hennar. Ég trúi ekki að neinar tilviljanir enda fæddist þetta lag upp sambandsslitunum og öðrum erfiðum samskiptum sem ég átti í á þessum tíma,“ segir Pétur Óskar.

Pétur Óskar er í stjörnumerkinu Ljón og þaðan kemur nafn lagsins. Hér að neðan má sjá myndbandið sjálft.

Klippa: Oscar Leone - Lion





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.