Kínverjar krefjast afsökunarbeiðni vegna skopmyndar Jyllands-Posten Atli Ísleifsson skrifar 28. janúar 2020 09:02 Á myndinni má sjá kínverska fánann teiknaðan nema gulu stjörnunum hefur verið skipt út fyrir kórónaveirunni. Skjáskot af vef JP
Kínversk yfirvöld fram á að danska blaðið Jyllands-Posten biðjist opinberlega afsökunar á skopmyndateikningu sem birtist í blaðinu í gær. Á myndinni má sjá kínverska fánann teiknaðan nema gulu stjörnunum hefur verið skipt út fyrir kórónaveirunni. DR greinir frá því að í yfirlýsingu frá kínverska sendiráðinu í Danmörku segi að skopmyndin sé móðgun við kínversku þjóðina sem glími nú við útbreiðslu afbrigðis af kórónaveirunni. Eigi teiknarinn Niels Bo Bojesen að viðurkenna mistök í málinu og biðjast afsökunar. Vilja Kínverjar meina að með teikningunni hafi blaðið gengið lengra en siðferðisleg mörk tjáningarfrelsisins segi til um og móðgað kínversku þjóðina. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skopmyndir Jyllands-Posten vekja umtal og deilur, en árið 2005 leiddu skopmyndir í blaðinu af Múhameð spámanni til milliríkjadeilna þar sem múslimar víðs vegar um heim fordæmdu birtinguna. Jacob Nybroe, aðalritstjóri Jyllands-Posten, hefur hafnað því að biðja Kínverja afsökunar á skopmyndinni sem birtist í gær. Alls hafa á annað hundrað manns nú látist af völdum veitunnar og tilkynnt um á fimmta þúsund smitaðra.
Danmörk Fjölmiðlar Kína Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent Sindri grunaður um fjárdrátt Innlent Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Innlent Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt Innlent Ærandi þögn og klukkan tifar Innlent Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Innlent Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Innlent Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Innlent Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Erlent Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Innlent Fleiri fréttir 52 ár fyrir Southport-morðin Með áhyggjur af stöðu hagkerfisins Vara við hvirfilbyljum á Bretlandseyjum Ætla að senda tíu þúsund hermenn að landamærunum Fleiri Kimdátar væntanlegir í Kúrsk: „Það er bara áfram og áfram“ Sólarorka atkvæðameiri en kolabrennsla árið 2024 Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Fulltrúi Ísraels í Eurovision lifði af hryðjuverkaárásirnar sjöunda október Enn einn gróðureldurinn ógnar Los Angeles Trump náðar eiturlyfjabarón huldunetsins Ný lög sögð leyfa giftingar allt að níu ára stúlkna Trump ósáttur við bón biskups um miskunn Söguleg snjókoma í suðurhluta Bandaríkjanna Verður forsætisráðherra Írlands á ný Túaregar björguðu spænskum manni úr klóm Íslamska ríkisins 76 látnir eftir eldsvoðann í Tyrklandi Allir starfsmenn jafnréttisaðgerða sendir í leyfi fyrir lok dags Íhugar að leggja viðbótartoll á allar vörur frá Kína Fjárfesta í gervigreind fyrir 70 billjónir Kæra ákvörðun Trumps: „Hann getur ekki breytt stjórnarskránni með einu pennastriki“ Yfirmaður strandgæslunnar látinn fjúka „Við erum Grænlendingar, við erum ekki Bandaríkjamenn eða Danir“ Tilnefning Hegseths samþykkt úr nefnd Náðaði fólk sem beitti lögregluþjóna ofbeldi Yfir níu kílómetrum á sekúndu á vindasömustu plánetunni Gera umfangsmikið áhlaupa á Vesturbakkanum Dularfullar kúlur innihalda ösku, mettaðar fitusýrur og saurgerla Segir Hitler-samanburð þreyttan Gera ráð fyrir að þúsundir líka sé að finna í húsarústunum 66 látnir í bruna á tyrknesku skíðahóteli Sjá meira