Fótbolti

Gunnhildur Yrsa: Frábært að vera komin til baka

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gunnhildur Yrsa byrjar á sigri með Val.
Gunnhildur Yrsa byrjar á sigri með Val. Vísir/Valur

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék sinn fyrsta leik fyrir Val í kvöld er liðið lagði KR af velli í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún var sátt með dagsverkið þó hún hefði viljað vinna stærra. Leiknum lauk með 1-0 sigri Íslandsmeistaranna.

„Mjög gott að byrja á sigri og KR stelpurnar mættu brjálaðar til leiks í dag og það var erfitt að brjóta þær niður þannig við erum mjög ánægðar með þrjú stig í dag,“ sagði Gunnhildur Yrsa að leik loknum.

Valur var mun sterkara liðið í leiknum en átti erfitt með að brjóta vörn KR niður og því var sigur liðsins mun naumari en margir gerðu ráð fyrir.

„Við héldum boltanum vel en á síðasta þriðjung áttum við erfitt með að skapa færi. Við áttum þó nokkur færi sem hefði átt að gera út um leikinn,“ sagði Gunnhildur en Valur átti svo sannarlega sín færi í leiknum en fyrir utan mark Hlín á 14. mínútu vildi boltinn ekki fara inn.

Sem fyrr segir gekk Gunnhildur til liðs við Val nú á dögunum og kveðst hún vera glöð að vera aftur að spila á Íslandi.

„Ég er hægt og rólega að koma mér inn í þetta og hef auðvitað ekki náð að æfa eins mikið og ég hefði viljað. En stelpurnar og þjálfararnir hafa verið frábærir og hafa komið mér vel inn í hlutina. Það er frábært að vera komin til baka.“

Valur er auðvitað í baráttu við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn en er sem stendur tveimur stigum á eftir Kópavogsliðinu sem á enn leik til góða. Gunnhildur segir Val alls ekki vera á þeim buxum að gefa upp á bátinn.

„Breiðablik er frábært lið en það erum við líka. Við þurfum að einbeita okkur að okkur og taka einn leik í einu. Þetta er ekki í okkar höndum þannig við gerum okkar og vonum það besta.“


Tengdar fréttir

Gunnhildur Yrsa semur við Val

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin til liðs við ríkjandi Íslandsmeistara Vals í Pepsi Max deild kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×