Innlent

Svona var áttundi upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar

Ritstjórn skrifar
Upplýsingafundurinn verður sendur út í beinni útsendingu klukkan 14 í dag.
Upplýsingafundurinn verður sendur út í beinni útsendingu klukkan 14 í dag. Vísir/vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis bjóða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni að Skógarhlíð 14 klukkan 14 í dag. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og verður einnig sendur út á Stöð 3.

Á fundinum í dag munu Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, og Alma D. Möller, landlæknir fara yfir stöðu mála vegna kórónuveirufaraldursins. Á fundinum verður einnig Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hann mun ræða aðgerðir á Hrafnistu vegna kórónuveirunnar og þær áherslur sem hafa þarf í huga þegar kemur að viðkvæmum hópum.

Blaðamenn munu sem fyrr fá tækifæri til að bera fram spurningar. Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum en hann verður einnig táknmálstúlkaður.

Líkt og síðustu daga er tilefni fundarins fyrst og fremst að stuðla að öflugri upplýsingagjöf til fjölmiðla og þar með til almennings.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×