Erlent

Lou­ise Glück hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels

Atli Ísleifsson og Kjartan Kjartansson skrifa
Glück með Barack Obama, þáverandi Bandaríkjaforseta, þegar hann veitti henni verðlaun í hugvísindum árið 2015.
Glück með Barack Obama, þáverandi Bandaríkjaforseta, þegar hann veitti henni verðlaun í hugvísindum árið 2015. AP/Carolyn Kaster

Bandaríski rithöfundurinn og ljóðskáldið Louise Glück hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Verðlaunin fær hún fyrir „augljósa skáldlega rödd sem gerir tilvist einstaklingsins algilda með íburðarlausri fegurð“. 

Sænska akademían greindi frá þessu á blaðamannafundi sem hófst klukkan 11. 

Glück fæddist í New York árið 1943 og ólst upp á Long Island. Hún er talin eitt áhrifamesta ljóðskáld samtímans í Bandaríkjunum. Hún hefur í verkum sínum mikið fjallað um misheppnuð ástar- og fjölskyldusambönd.

Nýjasta bók hennar, Faithful and virtuous night, kom út árið 2014, og hlaut á sínum tíma verðlaunin National book award. Árið 2012 gaf hún út bókina Poems 1962-2012. Fyrsta ljóðabók hennar, Firstborn, kom út árið 1968. Hún hlaut Pulizer-verðlaunin árið 1993 fyrir The Wild Iris, eða Villtu sverðliljuna.

Á síðasta ári voru veitt tvenn verðlaun í flokknum, fyrir árin 2018 og 2019, þar sem engin verðlaun voru afhent árið 2018. Féllu verðlaunin í skaut hinnar pólsku Olga Tokarczuk og hins austurríska Peter Handke.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×