Enn vinnur Arsenal með Rúnar í markinu en jafnt hjá Alberti | Öll úrslit kvöldsins 3. desember 2020 21:50 Rúnar Alex í leiknum í kvöld en í kvöld vann hann sinn þriðja sigur sem leikmaður Arsenal í jafn mörgum leikjum. Marc Atkins/Getty Rúnar Alex Rúnarsson var í marki Arsenal sem vann 4-1 sigur á Rapíd Vín í B-riðli Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Leikurinn var í raun leikur kattarins að músinni í fyrri hálfleik. Alexandre Lacazette kom Arsenal yfir með bylmingsskoti á 10. mínútu og átta mínútum síðar tvöfaldaði Pablo Mari forystuna. Eddie Nketiah kom Arsenal í 3-0 á 44. mínútu en Koya Kitagawa minnkaði muninn fyrir Rapid á 48. mínútu. Rúnar Alex varði þá skot og eftir darraðadans náði Koya að koma boltanum framhjá KR-ingnum. To the 2,000 fans inside Emirates Stadium tonight and our supporters around the world. pic.twitter.com/xWAgvIo73q— Arsenal (@Arsenal) December 3, 2020 Fjórða og síðasta mark Arsenal skoraði Emile Smith-Rowe, einungis þremur mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Arsenal hefur unnið alla fimm leiki sína í riðlinum en Rapid Vín er í 3. sætinu með sex stig. Sverrir Ingi Ingason var ónotaður varamaður hjá PAOK sem tapaði 2-1 fyrir Omonia Nicosia í E-riðlinum. PAOK er með fimm stig, PSV níu og Granada tíu. Omonia er með fjögur stig. Albert Guðmundsson spilaði í 70 mínútur er AZ Alkmaar gerði 1-1 jafntefli við Napoli. Dries Mertens kom Napoli yfir á 6. mínútu en Bruno Martins Indi jafnaði á 54. mínútu. AZ fékk vítaspyrnu á 60. mínútu en Teun Koopmeiners brást bogalistin. Starting XI The Boys In Red.#AZ #aznap #UEL pic.twitter.com/tIuzP6bxl8— AZ (@AZAlkmaar) December 3, 2020 Napoli er með tíu stig á toppi riðilsins, Real Sociedad og AZ Alkmaar eru með átta en Rijeka er á botninum með eitt stig. Alkmaar mætir Rijeka á útivelli í síðustu umferðinni. Öll úrslit kvöldsins: A-riðill: CFR Cluj - CSKA Sofia 0-0 Roma - Young Boys 3-1 B-riðill: Arsenal - Rapid Vín 4-1 Molde - Dundalk 3-0 C-riðill: Nice - Bayer Leverkusen 2-3 Slavia Prague - Hapoel Beer Sheva 3-0 D-riðill: Benfica - Lech Poznan 4-0 Rangers - Standard Liege 3-2 E-riðill: Granada - PSV 0-1 Omonia - PAOK 2-1 F-riðill: AZ Alkmaar - Napoli 1-1 Sociedad - Rijeka 2-2 G-riðill: AEK - Braga 2-4 Zorya - Leicester 1-0 H-riðill: AC Milan - Celtic 4-2 Lille - Sparta Prague 2-1 I-riðill: Qarabag - Maccabi Tel Aviv 1-1 Sivasspor - Villareal 0-1 J-riðill: LASK - Tottenham 3-3 Antwerp - Ludogorets 3-1 K-riðill: CSKA - Wolfsberger 0-1 Feyenoord - Dinamo Zagreb 0-2 L-riðill: Crvena Zvezda - Hoffenheim 0-0 Gent - Slovan Liberec 1-2 Evrópudeild UEFA
Öll úrslit kvöldsins: A-riðill: CFR Cluj - CSKA Sofia 0-0 Roma - Young Boys 3-1 B-riðill: Arsenal - Rapid Vín 4-1 Molde - Dundalk 3-0 C-riðill: Nice - Bayer Leverkusen 2-3 Slavia Prague - Hapoel Beer Sheva 3-0 D-riðill: Benfica - Lech Poznan 4-0 Rangers - Standard Liege 3-2 E-riðill: Granada - PSV 0-1 Omonia - PAOK 2-1 F-riðill: AZ Alkmaar - Napoli 1-1 Sociedad - Rijeka 2-2 G-riðill: AEK - Braga 2-4 Zorya - Leicester 1-0 H-riðill: AC Milan - Celtic 4-2 Lille - Sparta Prague 2-1 I-riðill: Qarabag - Maccabi Tel Aviv 1-1 Sivasspor - Villareal 0-1 J-riðill: LASK - Tottenham 3-3 Antwerp - Ludogorets 3-1 K-riðill: CSKA - Wolfsberger 0-1 Feyenoord - Dinamo Zagreb 0-2 L-riðill: Crvena Zvezda - Hoffenheim 0-0 Gent - Slovan Liberec 1-2
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“