Skoðun

Ólögmætt uppgreiðslugjald

Ólafur Ísleifsson skrifar

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur hef­ur dæmt upp­greiðslu­gjald lánþega á lán­um sem tek­in voru hjá Íbúðalána­sjóði (ÍLS) á ár­un­um 2005-13 ólög­leg. ÍLS var óheim­ilt að krefja lánþega um greiðslu upp­greiðslu­gjalda þegar þeir greiddu lán sín upp. Dómurinn hefur ekki aðeins áhrif fyrir einstaklingana sem höfðuðu málið heldur fyrir þúsundir lánþega og heimila.

Dómur héraðsdóms er fagnaðarefni. Óvíst er um framhaldið hvort ráðist verði í endurgreiðslur, eða hvort ÍLS lætur sverfa til stáls og áfrýjar til Landsréttar.

Fyrirspurn á Alþingi um uppgreiðslugjald

Húsnæðislán Íbúðalánasjóðs til neytenda með skilmálum um uppgreiðslugjöld voru hátt í 14 þúsund talsins á árabilinu 2005-13. Lán með uppgreiðsluþóknun voru fyrst veitt á árinu 2005 og allt til 1. nóvember 2013. Lán sem greidd voru upp með uppgreiðslugjaldi á árabilinu 2008-18 eru nærri 6.400 talsins. Þetta kemur fram í svari ráðherra við fyrirspurn minni á Alþingi 2018 um uppgreiðslugjaldið.

Í svari við fyrirspurninni kemur fram að heildarfjárhæð innheimtra uppgreiðslugjalda á árabilinu 2013-17 nemi um 2,4 milljörðum króna. Sú fjárhæð gæti hafa hækkað að mun á árunum 2018-20.

Átti venjulegt fólk að hafa sérfræðiþekkingu til að áætla uppgreiðslugjald?

Í svari við spurningu um hvernig fjárhæð uppgreiðslugjalda slíkra lána væri reiknuð kom glögglega fram að reikniaðferð uppgreiðsluþóknunar var ógagnsæ og ekki á færi nema sérfræðinga á átta sig á hver hún væri.

Í fyrirspurninni var leitað svara við á hvaða lagaheimildum álagning uppgreiðslugjalds væri reist. Í svarinu var vísað til ákvæða laga um húsnæðismál og þeim reglugerða sem settar hafa verið á grundvelli laganna. Þá blasti við að látið yrði reyna á það fyrir dómi hvort reglusetningin stæðist kröfur laganna, m.a. að í reglugerð skyldi kveðið á um hlutfall þóknunar sem ÍLS gæti áskilið sér eins og almenn venja var á íslenskum fasteignalána-markaði, en þó að hámarki sem nam kostnaði sjóðsins vegna uppgreiðslunnar. Nú liggur dómur héraðsdóms fyrir. Reglusetningin stenst ekki lög.

Lánþegar látnir gjalda þegar reglugerð stangast á við lög

Reglusetningin um uppgreiðslugjald sem ákvörðuð var með reglugerðum 2005 um gjaldskrá ÍLS stenst að mati héraðsdóms ekki áskilnað húsnæðislaga um heimild til að bjóða lán með uppgreiðslugjöldum. Segir í dómnum að hún geti því ekki verið grundvöllur að löglegri álagningu slíkra gjalda.

Þetta þýðir að reglugerðirnar gengu lengra en lögin heimila. Uppgreiðslugjaldið var ólögmætt. Að lögum var óheimilt að krefja lánþega um þetta gjald við uppgreiðslu láns eða greiðslur inn á lán. Gjaldið var tekið af lánþegum í heimildarleysi.

Ályktanir af dómnum

Haft er í fjölmiðlum eftir Þóri Skarphéðinssyni lögmanni sem vann málið að dóm­ur­inn fel­i þrennt í sér:

1. Að Íbúðalána­sjóði var óheim­ilt að krefja skuld­ara um upp­greiðslu­gjald þegar þeir greiddu upp lán sín.

2. Að Íbúðalána­sjóði var óheim­ilt að krefja skuld­ara um þókn­un þegar þeir borguðu inn á lán hjá sjóðnum.

3. Að þeir skuld­ar­ar sem ekki hafa getað end­ur­fjármagnað lán sem þeir tóku hjá Íbúðalána­sjóði (með nýj­um hag­stæðari lán­um frá öðrum lán­veit­end­um) vegna kröfu um upp­greiðslu­gjald geta nú kraf­ist þess að greiða þau lán upp án viðbót­ar­gjalds.

Að mati dómsins var lögfest að ÍLS gæti ekki áskilið sér þóknun umfram raunverulegan kostnað vegna tiltekins láns. Í þessu sambandi verður að hafa í huga að er umrætt lán var veitt var alþekkt að lánastofnanir krefðust uppgreiðslugjalds ef greitt var af láni fyrir gjalddaga eins og segir í dómnum. Venja var að uppgreiðslugjald væri tilgreint sem hlutfall af eftirstöðvum lánsins við uppgreiðslu og segir í dómnum að af almennri reynslu á markaði mættu skuldarar hafa vænst þess að umfang uppgreiðsluþóknunar næmi í hæsta lagi tveimur til þremur prósentum af uppgreiðsluvirði láns. Fram kemur í dómnum að fólkið sem höfðaði málið var krafið um fjárhæð sem samsvarar 16% af heildaruppgreiðsluverði veðbréfsins

Viðbrögð við dómi héraðsdóms

Sú spurning vaknar hvort ráðherra muni sjá til þess að allir sem hafa greitt ólögmætt uppgreiðslugjald fái það endurgreitt. Spyrja má hvort það verði gert strax eða endurgreiðslu frestað ef málinu verður áfrýjað?

Sjálfsagt verður að telja að ráðherra sjái til þess að ÍLS krefjist ekki uppgreiðslugjalds af lánum sem framvegis verða uppgreidd svo lengi sem réttaráhrif dómsins standa óhögguð, en hafa verður í huga að áfrýjun til Landsréttar frestar réttaráhrifum dómsins.

Þá vaknar spurning hvernig ráðherra telur rétt að koma til móts við þá sem tóku Íbúðalánasjóðslán með hærri vöxtum en ella til að forðast skilyrði um uppgreiðslugjöld?

Þá er ótalið tjónið sem fjöldi fólks hefur orðið fyrir með því að hafa ekki vegna uppgreiðslugjaldsins setið fast og ekki getað endurfjármagnað lán sín með hagstæðari kjörum en það býr við á láni frá ÍLS.

Dómur héraðsdóms sætir miklum tíðindum, ekki síst fyrir þá sök að neytendur á íbúðalánamarkaði hafa átt erfitt uppdráttar. Augljós rangindi við framkvæmd verðtryggingar fást ekki leiðrétt og þungur róður sýnist við að fá samþykkt lyklafrumvarp.

Mikilvægt er að allir sem hagsmuna eiga að gæta geri nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja rétt sinn, m.a. til greiðslu dráttarvaxta af ofteknu fé.

Höfundur er alþingismaður Miðflokksins.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×