Alvarleg tölvuárás á utanríkisráðuneyti Austurríkis Vésteinn Örn Pétursson skrifar 5. janúar 2020 17:54 Mynd úr safni. Vísir/Getty
Utanríkisráðuneyti Austurríkis varð í gær fyrir tölvuárás. Grunur leikur á að útsendari annars ríkis standi að baki árásinni. BBC greinir frá þessu. Árásin hófst í gærkvöldi og sérfræðingar hafa varað við því að hún gæti haldið áfram næstu daga. Athygli hefur vakið að árásin hófst sama dag og Græningjaflokkur Austurríkis tók ákvörðun um að ganga í stjórnarsamstarf við Íhaldsflokk landsins. Fljótt var tekið eftir árásinni og brugðist hratt við henni, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá ráðuneytinu. „Þrátt fyrir að allar öryggisráðstafanir hafi verið gerðar, er aldrei hægt að verjast tölvuárásum fullkomlega,“ segir í yfirlýsingunni. Árásin er ekki sú fyrsta sem ríkisstofnanir evrópskra ríkja verða fyrir, en í mars 2018 varð tölvukerfi þýsku ríkisstjórnarinnar fyrir alvarlegri tölvuárás. Þá er hópur hakkara, sem þekktur er undir nafninu „Skrautlegur björn“ (Fancy Bear), grunaður um að hafa staðið að baki samskonar árás á tölvukerfi þýska þingsins árið 2015.
Austurríki Tækni Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Hvalveiðilögin barn síns tíma Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Fleiri fréttir Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Sjá meira