Hringja í Rooney og vonast til þess að tímabilið verði flautað af svo Liverpool verði ekki meistari Anton Ingi Leifsson skrifar 23. mars 2020 07:30 Wayne Rooney segir að Liverpool eigi titilinn skilið en Bítlaborgarliðið hefur beðið í 30 ár. vísir/getty/samsett
Þegar sjálfur Wayne Rooney, uppalinn hjá Everton og lék síðar með Manchester United, er byrjaður að tala um að Liverpool eigi titilinn skilið er ljóst að þeir rauðklæddu hafa spilað ansi vel á tímabilinu. Rooney skrifar pistil í Sunday Times en þar fer hann yfir ensku úrvalsdeildina og málefni tengd henni. Hann skrifaði svipaðan pistil í síðustu viku þar sem hann vandaði stjórnarmönnum enska boltans ekki kveðjurnar. „Liverpool mun vinna ensku úrvalsdeildina. Núna, eins og þið getið ímyndað ykkur, eru stuðningsmenn Everton að hringja í mig og segja: Það verður að blása tímabilið af. Og auðvitað, sem uppalinn Everton-maður og leikmaður Man. United til þrettán ára, þá er hluti af mér sem væri alveg til í það,“ skrifaði Rooney. „En nei. Liverpool hefur verið frábært á tímabilinu. Þeir hafa lagt svo mikið á sig. Þeir eiga titilinn skilið. Geturðu ímyndað þér að bíða í 30 ár og svo væri þetta tekið af þeim? Rétta ákvörðunin hefur verið tekin,“ sagði Rooney um ákvörðunina að halda áfram með deildina. "He s showing his maturity. Some of the things he s talking about now makes so much sense. Wayne is becoming more outspoken but in a great way. @TonyCascarino62 on the new Wayne Rooney after his Sunday Times column pic.twitter.com/75cjLJfAnD— talkSPORT (@talkSPORT) March 22, 2020 „Þetta snýst líka um fall og liðin sem tryggja sig inn í Meistaradeildina. Þetta yrði mikið áfall fyrir þessi lið og það færu fullt af málum fyrir dómstóla ef tímabilið yrði flautað af. Eina rétta er að klára tímabilið - þrátt fyrir að það fari eitthvað inn á dagskrá næsta tímabils.“ „Það kæmi mér á óvart ef það tæki allt þangað til lok ársins að klára deildina. Fótboltinn er eins og aðrar greinar í mikilli óvissu og þurfa að hlusta á yfirvöld eins og aðrir. Það ætti hins vegar ekki að spila fyrir framan luktar dyr,“ sagði Rooney.
Enski boltinn Mest lesið England: Hver er kominn, að koma, farinn og að fara? Enski boltinn Víkingar á leið til Albaníu Fótbolti „Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“ Fótbolti Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Fótbolti Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Körfubolti Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Körfubolti Stefán Ingi á leið til Noregs Fótbolti Guðmundur Bragi til Danmerkur Handbolti Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Enski boltinn Fleiri fréttir „Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“ England: Hver er kominn, að koma, farinn og að fara? Víkingar á leið til Albaníu Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Guðmundur Bragi til Danmerkur Stefán Ingi á leið til Noregs KR fær ungan framherja frá Húsavík Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Fórnaði sér fyrir fyrsta boltann frá Mbappé FIFA hefur rannsókn á rasískum söngvum Argentínumanna Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Adam Silver ver nýjan svuntuskatt NBA deildarinnar Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Frá Liverpool beint í teymi Flick Cecilía Rán spilar með Internazionale í vetur Luka Modric framlengir samning sinn við Real Madrid Liðsfélagi Hákonar á leið til United Jón Axel fer í nýtt félag á Spáni Borgarstjóri Parísar synti í Signu: „Ekkert of hættulegt“ Fer frá Barcelona til Chelsea Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær „Það var alltaf hugmyndin, þannig að mission completed“ McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sjá meira