Innlent

Smituðum fjölgar um 89 á milli daga

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Heilbrigðisstarfsmenn sjást hér taka sýni úr fólki úti í bíl svo hægt sé að kanna hvort viðkomandi sé smitaður af kórónuveirunni.
Heilbrigðisstarfsmenn sjást hér taka sýni úr fólki úti í bíl svo hægt sé að kanna hvort viðkomandi sé smitaður af kórónuveirunni. Vísir/Vilhelm

Alls hafa nú 737 greinst með kórónuveiruna hér á landi. Er þetta fjölgun um 89 smit frá því í gær þegar staðfest smit voru alls 648.

Þetta kemur fram á upplýsingasíðunni covid.is.

Þar segir jafnframt að nú séu um 9.000 manns í sóttkví en um 2.000 manns hafa lokið sóttkví. Þá hafa verið tekin um 11.700 sýni.

Langflestir þeirra sem hafa smitast eru á höfuðborgarsvæðinu eða alls 578. Næstflest smit eru á Suðurlandi, 84, og þá koma Suðurnesin þar sem sem staðfest smit eru 34 talsins.

Sextán manns hafa greinst með veiruna á Norðurlandi vestra, ellefu á Norðurlandi eystra, fimm á Vesturlandi, tveir á Austurlandi og einn á Vestfjörðum. Þá eru sex smit það sem kallað er óstaðsett samkvæmt covid.is.

Flestir þeirra sem hafa smitast af kórónuveirunni eru á aldrinu 40 til 49 ára, eða alls 182. 136 einstaklingar á aldrinum 50 til 59 ára hafa smitast, 93 á aldrinum 60 til 69 ára, 23 sem eru 70 til 79 ára og tveir á aldrinum 80 til 99 ára.

Í yngri aldurshópum hafa fimmtán börn yngri en 10 ára greinst með veiruna. Börn og ungmenni á aldrinum 10 til 19 sem hafa greinst með veiruna eru alls 46 og 112 einstaklingar á aldrinum 20 til 29 ára hafa smitast. Þá hafa 128 manns sem eru 30 til 39 greinst.

Upplýsingafundur vegna kórónuveirunnar hefst klukkan 14 í dag og verður venju samkvæmt í beinni útsendingu hér á Vísi.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála en gestur fundarins í dag er Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahússprestur á Landspítala.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×