Innlent

Fjórir stöðvaðir með fölsuð skilríki í Leifsstöð í vikunni

Atli Ísleifsson skrifar
Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. Vísir/Vilhelm
Fjórir einstaklingar voru stöðvaðir með fölsuð skilríki í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að í gær hafi karlmaður framvísað grískum skilríkjum sem reyndust vera fölsuð.

„Áður hafði kona framvísaði ítölsku skilríki sem var ólöglega útgefið og stolið. Nokkru síðar framvísaði önnur kona breytifölsuðu ítölsku vegabréfi.

Loks voru karlmaður og kona, sem voru á ferð saman, stöðvuð en þau framvísuðu bæði ítölskum skilríkjum sem reyndust vera breytifölsuð.

Mál fólksins eru komin í hefðbundið ferli,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×