Enski boltinn

Sjáðu öll mörk gærdagsins á Vísi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nýtt keppnistímabil fór af stað í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar sjö leikir í fyrstu umferðinni fóru fram.

Meistarar Leicester hófu tímabilið á óvæntu tapi gegn Hull og þá náðu lærisveinar Pep Guardiola í Manchester City að knýja fram nauman sigur gegn Sunderland á heimavelli, 2-1.

Gylfi Þór Sigurðsson hafði betur gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni í Íslendingaslag deildarinnar er Swansea vann Burnley, 1-0.

Mörkin úr hverjum leik fyrir sig má sjá hér fyrir neðan en í spilaranum fyrir ofan er samantektarmyndband sem sýnir það helsta úr öllum leikjum gærdagsins.

Úrslitin í gær:

Hull - Leicester 2-1

Southampton - Watford 1-1

Burnley - Swansea 0-1

Crystal Palace - West Brom 0-1

Everton - Tottenham 1-1

Middlesbrough - Stoke 1-1

Manchester City - Sunderland 2-1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×