Enski boltinn

Ayew frá í fjóra mánuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ayew eftir að hann meiddist gegn Chelsea.
Ayew eftir að hann meiddist gegn Chelsea. vísir/getty
Dýrasti leikmaður í sögu West Ham, Andre Ayew, meiddist strax í fyrsta leik og verður lengi frá.

Hann var keyptur til félagsins frá Swansea í sumar á 20,5 milljónir punda og eðlilega er til mikils ætlast af honum.

Það voru aðeins 35 mínútur liðnar af fyrsta leik hans með félagið gegn Chelsea er hann meiddist.

Meiðslin eru á lærinu á Ayew og það alvarleg að hann þarf að fara í aðgerð. Hann verður því frá í fjóra mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×