Innlent

Núna þarf að vega og meta kosti þess að semja um málið

Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson
„Þegar þessi niðurstaða samninga­nefndarninar er kynnt er manni auðvitað efst í huga hversu miklu máli það skipti að hnekkja fyrri samningum og að það skuli hafa verið gert með jafnafgerandi hætti og samstöðu meðal þjóðarinnar,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. „Það sendi skýr skilaboð um að menn ætluðu ekki að sæta neinum afarkostum í þessu máli og ólíkt því sem forysta ríkisstjórnarinnar hélt þá fram, um að þjóðar­atkvæðagreiðslan væri tilgangslaus tímasóun, hefur komið í ljós að hún skipti öllu.“

Um efni samninganna segir Bjarni tvennt blasa við: „Annars vegar að þær fjárhagslegu skuldbindingar sem menn væru að undirgangast með þessum samningum eru af allt annarri stærðargráðu en samkvæmt fyrri samningi.“ Hins vegar sé umgjörð málsins gjörbreytt. Ekki væri verið að gangast í ábyrgðir fyrir risavaxin lán og þá hafi verið endursamið um ýmis lagaleg atriði með skynsamlegri hætti.

„Eftir sem áður, þó að þetta tvennt hafi breyst svona mikið, þá er réttlætiskennd manns á vissan hátt misboðið yfir því að við skulum yfirhöfuð þurfa að ræða þetta mál, vegna þess að þarna var um að ræða banka sem var ekki á nokkurn hátt rekinn á ábyrgð ríkisins,“ segir Bjarni.

Verkefni næstu daga sé að fara yfir það hvort þjóðin hafi engu að síður hagsmuni af því að ljúka málinu, með tilliti til efnahagslegra og lagalega þátta, þótt Bjarni segist enn algjörlega sannfærður um að engri lagaskyldu sé til að dreifa.

„Staðreyndin er nefnilega sú að þrátt fyrir að efnahagsleg áhrif þess að málið hafi tafist hafi verið stórkostlega ýkt og nær ekkert staðist af því sem flestir sem fjallað hafa um málið hafa sagt – allt frá háskólaprófessorum yfir í aðila vinnumarkaðarins – þá er ekki hægt að horfa alfarið framhjá því að því fylgja einhver efnahagsleg áhrif að málið skuli vera óleyst.“

Bjarni vill á þessu stigi ekkert segja um það hvort hann telji sig munu greiða atkvæði með ríkisábyrgð vegna samninganna.- sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×