Menning

Stjórnandinn í Berlín - kórinn í Borgarleikhúsinu

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Í vox feminae eru tæplega sextíu konur Margrét Pálmadóttir er kórstjóri Vox feminae, sem flytur tónlist í verkinu Hús Bernhörðu Alba í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur.
Í vox feminae eru tæplega sextíu konur Margrét Pálmadóttir er kórstjóri Vox feminae, sem flytur tónlist í verkinu Hús Bernhörðu Alba í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fréttablaðið/GVA
„Við munum í fyrsta skipti hitta tónskáld sýningarinnar Hús Bernhörðu Alba og æfa okkur saman, tónskáldið í Þýskalandi og við í Borgarleikhúsinu,“ segir Margrét Pálmadóttir, kórstjóri Vox feminae. Kórinn sér um tónlistarflutning í uppsetningu Borgarleikhússins á Húsi Bernhörðu Alba. Sýningin er í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur.



Tónskáld sýningarinnar, Hildur Ingveldar- og Guðnadóttir, býr í Berlín. „Þetta er rosalega spennandi fyrir okkur, þetta hefur ekki verið möguleiki áður, að stilla upp heilum kór og hafa tónskáldið á skjá fyrir framan og stjórna,“ segir Margrét jafnframt.

Í kvennakórnum Vox feminae eru 59 konur á öllum aldri. „Við erum margar sem tökum þátt í þessari uppfærslu. Við komum til með að skipta okkur upp í hópa, vera um það bil tuttugu á sviðinu hverju sinni,“ segir Margrét jafnframt.



„Æfingin er opin öllum og við verðum á æfingasvæðinu í Borgarleikhúsinu klukkan sex í dag,“ útskýrir Margrét.



Verkið um Bernhörðu Alba fjallar um það að aðalsöguhetjan fyrirskipar átta ára sorg vegna fráfalls eiginmanns síns og föður dætranna fimm. Hún heldur þeim, ásamt aldraðri móður og þjónustustúlkum, föngnum í húsi sínu án samskipta við umheiminn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.