Fótbolti

Ólafur Ingi skiptir um félag í Tyrklandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Miðjumaðurinn Ólafur Ingi Skúlason var ekki lengi að finna sér nýtt félag.

Ólafur sagði skilið við Genclerbirligi í gær eftir að hafa verið hjá félaginu í eitt ár.

Ólafur Ingi staðfestir við fótbolti.net að hann sé búinn að semja við Kardemir Karabukspor sem spilar í úrvalsdeildinni.

Þetta lið er nýliði í deildinni. Ólafur Ingi samdi til tveggja ára við félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×