Rauðu molarnir Unnur Helgadóttir skrifar 4. mars 2016 11:41 Undanfarið hefur umræðan um flóttafólk verið hávær. Ýmist er allt kapp lagt á að þagga niður umræðuna eins og um Voldemort sé að ræða eða biðlað til fólks að líta á björtu hliðarnar og bjóða flóttafólk velkomið til Íslands. Af því að við erum svo frábær og allt það. Lítum til baka um nokkur ár. Ísland í bullandi uppsveiflu og gífurleg þörf fyrir erlent vinnuafl. Pólverjar voru fluttir inn til landsins í álíka magni og Omaggio vasinn. Þeir unnu linnulaust fyrir lágu kaupi á meðan hinn almenni borgari keyrði um á svörtum gljáandi Range Rover með Bubba í botni. Þetta hentaði okkur vel, mjög vel meira að segja. Fjármálakerfið hrundi og við höfðum ekki þörf fyrir innflutta vinnuaflið lengur. Það besta í stöðunni var að hirða af þeim störfin og senda þau aftur heim. Þessa atburðarás má horfa á með mismunandi gleraugum, þar með talið svona; við skiluðum notaðri vöru sem við höfðum keypt nokkrum árum áður, einfaldlega vegna þess að hún hentaði okkur ekki lengur. Í einhverjum tilfellum var skilafresturinn runnin út og ekki einu sinni hægt að skipta. Í stað þess að nýta vöruna til hins betra þá skelltum við henni upp í hillu og létum afskiptalausa. Pólverjar sem komu hingað til lands í þeim erindagjörðum að vinna voru vissulega ekki flóttafólk en þeir voru í leit að betra og öruggara lífi sem við gátum veitt þeim. Staðan í dag er sú að milljónir flóttafólks eru í leit að betra og öruggara lífi. Margir hafa upplifað aðskilnað frá fjölskyldu sinni og óvissu um eigin örlög. Þau þrá að vera laus við hræðslu og kvíða. Það kallast varla eftirsóknarverð staða að vita ekki um afdrif fjölskyldumeðlima sinna. Flóttafólk er í leit að öryggi og það getum við veitt þeim. Það sem við eigum sameiginlegt með flóttafólki er að við erum öll manneskjur sem hafa félagslegar, líkamlegar og tilfinningalegar þarfir. Það sem hins vegar aðskilur okkur og flóttafólkið er að þau búa við stríðsátök og óstöðugt pólitískt ástand. Það eru forréttindi að alast upp sem barn á Íslandi, í hættulausu umhverfi og hafa einungis áhyggjur af því að líta til beggja hliða þegar farið er yfir götu. Það væri eftirsóknarvert að geta leyft öðrum börnum að alast upp á þennan hátt. Og talandi um blessuð börnin, þessi fordómalausu skinn. Í augum þeirra skiptir ekki máli hvaða tungumál þú talar, hver húðlitur þinn er eða hvort þú ert með derhúfu á hausnum eða slæðu fyrir andlitinu. Hér vitna ég sérstaklega í myndband sem Ævar vísindamaður gerði meistaralega vel. Sú ímynd sem blasir við börnum er auðvitað einfölduð og ýmsar aðrar breytur mikilvægar fyrir heildarmyndina. Engu að síður er þetta viðhorf sem við ættum að tileinka okkur og hafa á bak við eyrað endrum og eins. Ýmis rök hafa verið lögð fram gegn því að veita flóttafólki dvalarleyfi hér á landi. Þar ber hæst að við eigum að hugsa fyrst og fremst um íslenska samfélagsþegna sem þurfa mest á aðstoð að halda, til dæmis eldri borgara og öryrkja. Því eru flestir, ef ekki allir sammála. En spurningin er, hvenær getum við sagt að staða þessara tveggja málaflokka sé í góðum farvegi og nú getum við loks snúið okkur að flóttafólki? Ég efast um að við getum það einhvern tímann. Jú, kannski ef Tímon og Pumba yrðu við stjórnvölin. Umræðan hefur einnig leiðst út í að innan um flóttafólk leynast “ekkert alltof fínir pappírar.” Það er hárrétt en Ísland hefur líka alið af sér svarta sauði - því má ekki gleyma. Við erum komin á þann stað að þróun samfélagsins er ör og ýmsar breytingar eiga sér stað sem við ráðum ekki við. Flóttafólk er dæmi um þessar breytingar og með hvaða verkfærum við leysum þetta verkefni er undir okkur komið. Við þurfum að ákveða hvar við viljum staðsetja okkur í þessari hringiðu. Ætlum við að vera eins og Barbapabbi sem elskar alla eða tileinka okkur norður-kóreskt stjórnarfar? Það er eins og tveir andstæðir pólar togist á. Annars vegar viljum við vera gamla góða Ísland þar sem við lifum í öruggu og friðsælu umhverfi. Hér þekkjast allir mæta vel og fáir kippa sér upp við það ef jafnvel frændur og frænkur verða ástfangin. Hins vegar viljum við líka vera framarlega á alþjóðavettvangi hvað varðar tækni- og tölvuvæðingu, rannsóknir og nýsköpun. Þar sækjum við þekkingu til annarra landa og kraftar internetsins tryggja gott upplýsingaflæði. Við viljum sem sagt vera á báðum pólum en ætlum ekki að opna landið okkar fyrir öðru fólki. Áhugavert, vægast sagt. Þess vegna varpa ég spurningu út í kosmósið. Viljum við koma fram við flóttafólk eins og rauðu molana í Mackintosh´s dollunni? Það vill þá enginn en við borðum þá samt því við erum gráðug eða vegna þess að við neyðumst til þess. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hversu góð eru laun lækna? Teitur Ari Theodórsson Skoðun Réttlæti Hallgríms Helgasonar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Ég er alveg nógu verðmæt eins og ég er! Ragnheiður Stephensen Skoðun „Ekki í mínum bakgarði, TAKK!“ Davíð Bergmann Skoðun Atvinnubótastarfsemi framboða DIljá Mist Einarsdóttir Skoðun Af hverju ætti ungt fólk að kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Anton Berg Sævarsson Skoðun Nægjusamur nóvember – Að endurstilla neyslumenningu okkar Guðrún Schmidt Skoðun Er Kristófer talsmaður skyndilegrar skattheimtu á ferðaþjónustu? Ingvar Örn Ingvarsson Skoðun Stjórnsýsla eða pólitík? Helgi Brynjarsson Skoðun Kennarinn sem hvarf Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber Skoðun Skoðun Skoðun Þess vegna talar ChatGPT íslensku Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Uppbygging heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni: Er það á stefnuskránni fyrir þessar kosningar? Hildigunnur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Gleðilega töfrandi kosningabaráttu Jón Þór Kristjánsson skrifar Skoðun Samfylkingin óspjallaða Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Árás á fátækasta fólkið í borginni Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Fjármögnum háskólana til jafns við hin Norðurlöndin Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Af hverju ætti ungt fólk að kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Anton Berg Sævarsson skrifar Skoðun Mennska eða harka í málefnum hælisleitenda Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun „Ekki í mínum bakgarði, TAKK!“ Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er Kristófer talsmaður skyndilegrar skattheimtu á ferðaþjónustu? Ingvar Örn Ingvarsson skrifar Skoðun Börnin okkar á biðlistunum Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Leiðtogar í grænum umskiptum Nótt Thorberg skrifar Skoðun „Samningana í gildi“ Pjetur St. Arason skrifar Skoðun Ég er alveg nógu verðmæt eins og ég er! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Atvinnubótastarfsemi framboða DIljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Hversu góð eru laun lækna? Teitur Ari Theodórsson skrifar Skoðun Nægjusamur nóvember – Að endurstilla neyslumenningu okkar Guðrún Schmidt skrifar Skoðun Stjórnsýsla eða pólitík? Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Réttlæti Hallgríms Helgasonar Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Misrétti, vonleysi og baráttan við að halda í bjartsýnina Ari Orrason skrifar Skoðun Börnin okkar eru að deyja – hvernig bregst þjóðin við? Björk Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin huldu rándýr í mannslíkömum sem skaða unga fólkið Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Hið augljósa útlendingavandamál Hallþór Jökull Hákonarson skrifar Skoðun Þúsundir íbúða á glámbekk! Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kennarinn sem hvarf Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber skrifar Skoðun 10 ára Heilbrigðisstofnun Suðurlands Díana Óskarsdóttir skrifar Skoðun Jafnlaunavottun verði valkvæð en ekki skylda Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Kennir bara meira! Aðalheiður Marta Steindórsdóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á uppfærslu á Íslandi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Af hverju Píratar? Daníel Þröstur Pálsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppbygging heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni: Er það á stefnuskránni fyrir þessar kosningar? Hildigunnur Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Er Kristófer talsmaður skyndilegrar skattheimtu á ferðaþjónustu? Ingvar Örn Ingvarsson skrifar