2,7 milljóna króna sekt fyrir brot undir stýri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. desember 2019 15:35 Greiði karlmaðurinn ekki sektina bíða hans 68 dagar í fangelsi. Vísir/Vilhelm
Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða 2.689.000 krónur í sekt innan fjögurra vikna ella sitja í fangelsi í 68 daga. Maðurinn hefur ítrekað gerst brotlegur á lögum fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness fyrir fjórum vikum en birtur í dag. Ákæran á hendur manninum var í átta liðum en brotin eru keimlík. Maðurinn er endurtekið stöðvaður af lögreglu undir stýri, undir heilmiklum áhrifum fíkniefna á borð við amfetamín, kókaín og maríjúana auk þess sem efni fundust endurtekið á honum. Brotin áttu sér stað á þriggja mánaða tímabili frá október 2018 til janúar 2019. Hann játaði brot sín greiðlega en þetta er í annað skipti sem hann er fundinn sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Auk sektarinnar var karlmaðurinn sviptur ökurétti í fimm ár og þarf að greiða þóknun verjandans, rúmlega hundrað þúsund krónur, og tæplega 1,3 milljónir króna í annan sakarkostnað.
Dómsmál Fíkniefnavandinn Umferðaröryggi Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Sjá meira